Kynnisferð til Kína
Í opnu vikunni í FAS brá Vilhjálmur dönskukennari sér i ferðalag til Kína. Tilgangur ferðarinnar var að heimsækja menntaskóla í Peking og Nainjking með hugsanlega samvinnu og nemendaskipti í huga.
Í Peking fór Vilhjálmur í þúsund manna skóla. Algeng bekkjarstærð eru 40 - 60 nemendur og einn kennari. Í Nainjking var farið í töluvert stærri skóla en þar eru nemendur um 3000. Þessi skóli sérhæfir sig í tungumálakennslu. Kennarar skólans koma frá mörgum löndum til að tungumálakennslan sé sem best. Þá er þessi skóli i samvinnu við marga aðra skóla víða um heim. Fyrirhugað er að koma á samvinnu milli tungusmálaskólans í Nainjking og FAS með verkefnavinnu í ensku 503 næsta haust.
Vilhjálmur notaði tækifærið og kynnti íslenska menningu og tungu. Var hann hinn ánægðasti með ferðina.





Skrifa athugasemd