Heitir pottar
í Skaftafelli
Heita vatnið í borholunni við Sandasel hér í Skaftafelli er auðvitað stórkostlegt fyrir svæðið hér og á vonandi eftir að nýtast vel því það býður upp á ýmsa möguleika segir Regína Hreinsdóttir þjóðgarðsvörður sem var á leiðinni í Sandasel að skoða framkvæmdirnar þegar vefurinn náði sambandi við hana. Vatnið úr borholu sem er 298m djúp er um 50° heitt og miklar líkur á að mun heitara vatn finnist á meira dýpi en ekki verður borað dýpra að sinni. Nú er að sjá hvernig rennslið verður og eins þurfum við að skoða hvernig best verður staðið að því að nýta vatnið og ekki skal því neitað að það er notaleg tilhugsun ef hægt verður að bjóða gestum okkar í heita potta .
Það eru ekki margir daga í vetur að ekki hafi einhverjir útlendir ferðamenn komið við í þjóðgarðinum og fengið sér göngutúr um næsta nágrenni þjónustustöðvarinnar og undanfarnar tvær vikur hefur þessum gestum mikið fjölgað. Regína segir að þó þjónustustöðin sé ekki opin þá sé yfirleitt verið að vinna á skrifstofunni og þar hafi þeir samband sem vilja.
Verið er að leggja lokahönd á þessar viðhaldsframkvæmdir tilheyrandi þjónustumiðstöðinni sem hófust í fyrra og er nú orðinn mikill munur á vinnuaðstöðu starfsfólks og eins á snyrtihúsinu sem var mikið endurnýjað. Hitakerfið í húsunum var endurbætt og er tilbúið til að hægt verði að tengja heita vatnið frá Sandafelli inn á það en þangað til að því kemur verður rafmagnshitunin eins og verið hefur.





Skrifa athugasemd