Landsyn tekur yfir sölu og markaðsmál Smyril line í Noregi
Ferðaskrifstofan Landsyn í Noregi sem rekin er af hjónunum Birnu Ingólfsdóttur og Ófeigi Birni Jóhannessyni skrifaði í dag undir samning við Smyril line þess eðlis að Landsyn tekur yfir sölu og markaðsmál Smyril line i Noregi. Landsyn verður þá aðalumboðsskrifstofa fyrir Smyri Line i Noregi. Landsyn og Smyril line munu vinna saman að auknum straumi ferðamanna frá Noregi til Islands.
"Það er mikil ánægja fyrir okkur að Smyril line treysti okkur til þessa verkefnis og okkur hlakkar til að takast á við það í góðu samstarfi við starfsfólk Smyril line i Færeyjum og Íslandi" segir Birna.
Öll sala hjá Landsyn á ferðum til Island hefur aukist það sem af er af árinu og lítum þau hjónin björtum augum á framtíðinna.




Skrifa athugasemd