OilSim kynnt í Orkustofnun
Þann 26. febrúar síðast liðinn stóð Simprentis sem hannar tölvu- og námsleikinn OilSim fyrir opnum degi í húsnæði Orkustofnunar á Grensásvegi. Tilgangurinn var að kynna leikinn fyrir sem flestum. Sigurliðið í olíuleitinni var fengið til að koma og miðla af reynslu sinni. Starfsmenn Orkustofnunar höfðu hengt upp mikið af upplýsingum um Drekasvæðið svonefnda og fengu því gestirnir sem komu bæði upplýsingar um væntanleg olíuleitarsvæði Íslendinga og um OilSim tölvuleikinn. Það kom flestum á óvart að geta borið saman raunveruleikann og svo leikinn og sjá hvað aðstæður í þessum tveimur heimum eru líkar.
Það var töluverður fjöldi sem kom við hjá Orkustofnun á þessum kynningardegi. Þar á meðal voru kennarar og nemendur sem fengu að prófa að spila leikinn. Þá kom aðili frá Sagex sem styrkti ferð Íslendinganna til London á dögunum og fulltrúi frá menntamálaráðuneytinu. Einnig litu inn fjölmargir starfsmenn Orkustofnunar.
Það má með sanni segja að olíuleitarliðið okkar hafi vakið athygli fyrir góðan árangur. Fjölmargir hafa sent góðar kveðjur í skólann. Þar á meðal er iðnaðarráðherrann okkar Össur Skarphéðinsson sem sendi strákunum persónulegt bréf.
Á meðfylgjandi mynd má sjá strákana með Arnóri Guðmundssyni frá menntamálaráðuneytinu.





Skrifa athugasemd