Mars
Yfir Höfn
Yfir Höfn

06.03.2009 Mars

Lóðaúthlutun á Höfn 20. mars

 

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur birt og auglýst þær lóðir sem eru til úthlutunar á Höfn og hefst úthlutun 20.mars nk.

Lóðirnar sem eru til úthlutunar eru:

Íbúðalóðir:

4 einbýlislóðir við Hagaleiru

9 einbýlislóðir við Fákaleiru

4 einbýlislóðir við Álaleiru

1 einbýlislóð við Hagatún

3 einbýlislóðir við Dalbraut

3 einbýlislóðir við Hraunhól

1 einbýlislóð við Kirkjubraut

3 íbúðarlóðir f. fjölbýli við Bugðuleiru

4 íbúðarlóðir f. parhúsi við ‘Alaleiru

1 íbúðarlóð f. raðhús við Víkurbraut.

 

Þjónustu og verslunarlóðir:

Litlabrú/ Miðbæjarkjarni

2 lóðir við Hafnarbraut

1 lóð við Vesturbraut

 

Iðnaðarlóðir:

2 lóðir við Álaugarveg

1 lóð við Bugðuleiru

3 lóðir  við Ófeigstanga

6 lóðir við Miðós

2 lóðir við Krosseyjarveg.

 

Þá eru 5 hest-og fjárhúsalóðir lausar.

Fjöldi einstaklinga hafa sýnt áhuga á lóðum og síðustu tvo daga hafa þrír aðilar sýnt áhuga á að byggja sex íbúðir bæði í einbýlis-og parhúsum segir Haukur Ingi  Einarsson framkvæmdastjóri tækni og umhverfissviðs. Mér finnst mikill áhugi hjá fólki og tímabært að hér verði farið að hefjast handa við húsbyggingar  enda mikill skortur á húsnæði.

Framkvæmdir við nýju lóðirnar á leirusvæðinu ganga vel og verða þær tilbúnar til úthlutunar  eftir 20 mars og tilbúnar til að byggja á þeim eftir 3-4 mánuði.

Lítið hefur verið byggt á Höfn síðustu árin en nú er að finna að breytingar sé von og hér ríkir bjartsýni á framtíðina, mikil áhugi er á nýjum atvinnugreinum sem unnið er að og óhætt að segja að margt er á döfinni.

Við stefnum hátt, segir Haukur Ingi,og komumst þangað sem við ætlum- kannski ekki alltaf á áætluðum tíma  en við komumst.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica