Fyrstu tónleikar Norðurljósablúss
Í kvöld verða fyrstu tónleikar Norðurljósablúss 2009 á Hótel Höfn. Það er blúsarinn Guðgeir Björnsson frá Egilsstöðum sem ríður á vaðið í ár og höfum við frétt að hann sé með þrjá gítara til reiðar svo eitthvað verður tekið á því. Með Guðgeiri spila bassaleikarinn Jón Arngrímsson og trommarinn Valgeir Skúlason sem báðir eru frá Borgarfirði eystra.
Það verður því dreifbýlisblús af bestu gerð á þessum tónleikum og það kostar ekkert inn frekar en á aðra tónleika hátíðarinnar.
Á föstudaginn fá grunnskólabörn á Hornafirði sjálfan Mugison í heimsókn og fá að kynnast tónlistinni hans svo það er blúsað fyrir alla aldurshópa á Höfn í Hornafirði um þessa helgi.





Skrifa athugasemd