Styðjum Árna Rúnar !
Hjalti Þór bloggar
Árni Rúnar Þorvaldsson, grunnskólakennari og formaður bæjarráðs Hornafjarðar, tekur þátt í prófkjöri Samfylkingar fyrir komandi Alþingiskosningar. Árna Rúnar hef ég þekkt lengi og bara af góðu einu. Við tókum upp náið samstarf þegar meirihluti Samfylkingar og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Hornafjarðar var myndaður í júní 2006 og ég var ráðinn bæjarstjóri. Síðan þá hefur ekki borið skugga á samstarfið þrátt fyrir að fyrir stafni hafi verið erfiðar ákvarðanir og einhver mótvindur um tíma. Árni er heiðarlegur og opinskár í samstarfi og mjög traustur þegar á reynir.
Eins og hjá öðrum einstaklingum eru sum mál fyrirferðarmeiri í málflutningi Árna en önnur. Áherslur hans hafa oftar en ekki verið hvað mest á málefnum fjölskyldunnar. Þannig ýtti hann mikið á það að hafin yrði vinna að lækkunum á gjaldskrá bæjarins, systkinaafsláttur aukin og tekin upp styrkur til fjölskyldna vegna íþrótta- og æskulýðstarfs. Í því máli var áberandi hversu hann horfði á þann hóp sem ekki tekur þátt í því sem mætti kalla hefðbundið íþróttastarf og lagði ríka áherslu á að börn gætu fengið styrki við að koma á fót nýjum félagsskap í íþróttum og æskulýðsstarfi. Árni hefur líka barist fyrir eflingu atvinnulífs og lagt ríka áherslu á þátt menntunar, rannsókna og frumkvöðlastarfs í þeim efnum. Jafnframt hefur hann lagt áherslu á að farið verði fjölbreyttar leiðir í atvinnumálum, t.d. nýtingu á vatni og orkufreks iðnaðar.
Ég er þess fullviss um að Árni verði öflugur málsvari almennings á Alþingi og ég hvet fólk til að flykkja sér að baki hans og standa þannig að endurnýjun og ferskum vindum á Alþingi.
- Hjalti Þór
------------------------------------------------------------------------------------------
Hér er hægt að komast inn á Netkostningu Samfylkingarinnar
-----------------------------------------------------------------------------------------





Skrifa athugasemd