Palestínuferð á vegum Rauða krossins
Verkefni á vegum Ungmennahreyfingar Rauða krossins
Hornfirðingurinn Gunnlaugur Bragi Björnsson er nú staddur í Palestínu ásamt Kristínu Helgu Magnúsdóttur og starfsmanni Rauða krossins á vegum Ungmennahreyfingar Rauða krossins en Rauði kross Íslands hefur í samstarfi við Rauða hálfmánann í Palestínu unnið að verkefnum í sálrænum stuðningi fyrir börn og ungmenni síðan árið 2002. Þau eru þarna með sex öðrum ungmennum frá Rauða krossinum í Danmörku, Frakklandi og Ítalíu og munu heimsækja skóla, heimili og fjölskyldur og kynnast lífi jafnaldra sinna í skugga átakanna í landinu, en þau koma heim 7. mars.
Þegar heim er komið munu þau kynna ástandið og verkefni Rauða krossins og Rauða hálfmánans hvert í sínu landi með kynningarátaki í skólum og fjölmiðlum. Verkefnið er styrkt af Mannúðarskrifstofu Evrópu (ECHO).
Gunnlaugur og Kristín eru bæði fædd árið 1989. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Hamrahlíð fyrir tæpu ári en Kristín útskrifast í vor frá Borgarholtsskóla. Starfsmaður Rauða krossins sem er með þeim er Sólveig Ólafsdóttir, sviðsstjóri útbreiðslusviðs Rauða kross Íslands.
Þau Gunnlaugur og Kristín halda úti dagbók um ferðina á palestinufarar.blog.is og er fólk hvatt til að fara þar inn og lesa pistlana þeirra sem eru mjög áhugaverðir og lýsa ástandinu á persónulegri og nálægri hátt en við heyrum í fréttunum flesta daga.





Skrifa athugasemd