Mars
Seljavellir Landbúnaðarverðlaun 2009
Seljavellir Landbúnaðarverðlaun 2009
Seljavellir Landbúnaðarverðlaun 2009 (mynd Bændasamtök Íslands)
Mynd 2 af 3
1 2 3

03.03.2009 Mars

Seljavellir hlutu Landbúnaðarverðlaun 2009

Á Búnaðarþingi sem fram fór um síðustu helgi veitti Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra Landbúnaðarverðlaunin fyrir árið 2009 og voru Seljavellir meðal þriggja býla sem hlutu verðlaunin að þessu sinni.
Verðlaunin hlutu ábúendur á Seljavöllum fyrir dugnað, framsýni og myndarskap. Þau Hjalti Egilsson og Birna Jensdóttur,  Eiríkur Egilsson og Elín Oddleifsdóttur veittu verðlaununum viðtöku ásamt móður þeirra bræðra, Halldóru Hjaltadóttur. Þá minntist ráðherra sérstaklega manns Halldóru, Egils Jónssonar heitins, fyrrum Alþingismanns, héraðsráðanauts Búnaðarsambands A- Skaftfellinga í tuttugu ár og bónda á Seljavöllum.

Á Seljavöllum reka hjónin Hjalti og Birna kartöfluframleiðslu þar sem heildarframleiðsla er um 400 tonn árlega. Hjónin Eiríkur og Elín búa með um 200 nautgripi og stunda mjólkurframleiðslu. Samanlögð ársframleiðsla á Seljavöllum eru um 800 tonn af mjólk, kartöflum og kjöti.
Þetta er í 13. sinn sem Landbúnaðarverðlaunin eru veitt. Auk Seljavalla voru það Holtssel í Eyjafirði og Akursel í Öxarfirði sem einnig hlutu Landbúnaðarverðlaunin fyrir árið 2009.
Verðlaunagripirnir sem hafa verið eins til allra verðlaunaþega eru hönnuð og smíðuð af Ívari Þ. Björnssyni gullsmið.  Þar gefur að líta útskorið Íslandskort úr silfri á íslenskri steinplötu. Áletrað er nafn verðlaunaþega.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica