Ný lögreglustöð
1. mars voru boðnar út framkvæmdir vegna nýrrar lögreglustöðvar á Höfn og verða tilboð opnuð 17.mars. Þetta eru breytingar á neðri hæð sýslumannshússins við Hafnarbraut 36 ásamt rúmlega 100 fm. viðbyggingu. Bifreiðageymsla og 3 fangaklefar verða í viðbyggingunni en í heild verður húsnæðið rúmir 300 fm. Fangaklefarnir verða 12-13 fm., um helmingi stærri en þeir sem lögreglan hefur í notkun núna, og verður einn klefinn ætlaður fyrir gæslu- eða afplánunarfanga ef þarf.
Sigurður Guðnason lögregluvarðstjóri á Höfn er harðánægður með þessa væntanlegu aðstöðu og segir að öll aðstaða í nýju lögreglustöðinni verði mjög góð og við hönnun húsnæðisins hafi fullt tillit hafi verið tekið til óska og tillagna þeirra sem hér starfa í lögreglunni.
Lögreglustöðin á að verða tilbúin í nóv.-des. á þessu ári





Skrifa athugasemd