Þyrla Landhelgisgæslunnar skilar lækni á Heilsugæslustöðina.
Fréttatilkynning
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 09:34 beiðni frá Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar (FML) um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-GNA vegna bílslyss sem varð við Kirkjubæjarklaustur. Flugtak þyrlunnar var kl. 10:32. Slysið varð um 5 km austan við Jökulsárlón og voru fimm manns í bifreiðinni, þrír komust úr bílnum en tveir voru fastir. Sjúkrabifreið flutti eina konu með höfuðáverka að Kirkjubæjarklaustri þar sem þyrlan tók við hinni slösuðu. Hin slasaða mun hafa verið í öryggisbelti. TF-GNA fór frá Klaustri kl. 11:40 áleiðis til Reykjavíkur.
Örskömmu síðar var beðið um þyrlan snéri við að Klaustri, tæki lækninn og héldi síðan til Hornafjarðar, þar var bráðveikt ungabarn að sögn FML. Enginn læknir var þá á Höfn, væntanlega vegna þess að hann var í útkalli vegna umferðarslyssins. Munu læknar hafa metið ástand konunnar svo að hún þyldi þetta aukaferðalag.
Áður en þyrlan hélt aftur til Reykjavíkur var fyllt á tankinn á flugvellinum og hinn farþeginn úr bílnum sem slasaðist og var skoðuð hér á Höfn fékk far með þyrlunni.
Farþegarnir tveir voru báðir í bílbeltum og eru ekki alvarlega slasaðir
TF-GNA lenti á Höfn um kl. 12:25 og er væntanleg til Reykjavíkur um kl. 15:00.




Skrifa athugasemd