Þorrablót Hornafjarðardeildar 4x4 klúbbsins
Hornfirðingar skelltu sér í ansi magnaða þorrablótsferð í Hólaskjól að Fjallabaki helgina 20-22 febrúar. Sumir fóru reyndar degi áður af stað yfir Stóra skaflinn (Vatnajökul) og stefndu á Grímsfjall. Það voru Gulli og Laufey á 44" Patrol og feðgarnir Einar Björn og Viktor Örn á 35" Jimny. Gekk fínt hjá þeim á Grímsfjall og áttu þau notalega nótt í þessum líka flotta skála Jöklarannsóknarfélagsins.
Á föstudeginum þegar af Grímsfjalli kom þá brotnaði öxull í Patrol, nú voru góð ráð dýr, (reyndust í lokin alveg rándýr) haft var samband við Sissa og hann beðinn að taka öxul sem Gulli átti heima með sér. Eftir öxulbrotið var hámarks hraði á Patrol 0,4 til 0,7 km á klukkustund og sóttist ferðin af jökli því heldur seint.Keli og Sissi ákváðu að fara á Breiðbak á móti jöklaförunum með öxulinn, og ekki vildi nú betur til en það að afturdrifið hjá Sissa gaf sig, þar með var hans ferðalagi lokið og hann aðstoðaður til baka í Hólaskjól. Var ákveðið að Helgi Kristinn og Jökull færu á eftir Kela því að ekkert vit var að fara einbíla, sérstaklega eins og færðin var, endalaus krapi, líktist meira fenjasvæði en hálendi Íslands í febrúar. Eftir 8 klukkutíma skrepp á móti, hittust loks ferðalangarnir á Breiðbak, það var langþráð. Leiðindaveður var, gekk á með úrhellisrigningu og vindi,ekkert varð því úr öxulskiptum. Gekk nú heldur hraðar í átt að Hólaskjóli en ansi hreint orðið lítið um eldsneyti á Jimny og Patrol, góðir ferðafélagar láta sig nú ekki muna um að redda því og það með stæl. Í Skælingi var svo beðið með kaffi til að hressa mannskapinn- það var vel þegið og mikið gott.
Áfram er haldið og í Hólaskjól, þar var lent um kl. 17 á laugardag, þá er fólkið sem var á Grímsfjalli búið að vera á ferð frá kl. 10 á föstudagsmorgni og félagarnir sem á móti komu sannarlega ekki búnir að fá neina hvíld frá föstudagsmorgni heldur. Í Hólaskjóli var svo haldið heljarinnar þorrablót, Magga Péturs sá um matinn að venju, og ekki þarf að orðlengja það að maturinn, framreiðslan og öll umgjörð var hin glæsilegast og besta. Þar með var hennar hlutverki hvergi lokið, heldur snarar hún fram skemmtiefni eins og ekkert sé með Jón Braga sér við hlið, alveg óborganleg skemmtun sem þar var fram borin, menn glöddust svo fram á nótt eins og venja er á þorrablótum. Á sunnudegi er ákveðið að fara Mýrdalsjökul heim, þrátt fyrir að hann væri kannski ekki alveg í áttina, en það má alltaf beygja seinna. Mýrdalsjökull tók opnum örmum á móti okkur, færið mjög gott og útsýni frábært, staldrað var við á hnjúki einum, sem nú nefnist Löduhnjúkur eftir Lödunni hans Finns frá Berufirði, þar renndi ungdómurinn sér á slöngum og þoturössum í sól og blíðu. Sáttir og sælir héldu ferðalangarnir svo heim í eftirmiðdag á sunnudegi, farnir að skipuleggja næstu ferð. Gulli, Laufey, Einar Björn og Viktor Örn vilja koma að miklu þakklæti til ferðafélaganna fyrir ómetanlega hjálp, vilja og elju að koma á móti okkur, ef þið góðir ferðafélagar þurfið einhverntíma á aðstoð að halda þar sem þið eruð á ferð, minnist þá þess að við eigum ykkur mikla skuld að gjalda.
Kveðjur úr Lækjarhúsum og Reynivöllum Suðursveit





Skrifa athugasemd