Febrúar
Iðunn Tara sigurvegari í kappáti kvenna
Iðunn Tara sigurvegari í kappáti kvenna
Mynd 2 af 2
1 2

27.02.2009 Febrúar

Ólympíuleikar Austurlands

fóru fram á Egilsstöðum 25. febrúar


Núna í opinni viku FAS er margt um að vera. 
Á miðvikudagsmorgninum 25. feb.  fóru tvær rútur frá FAS áleiðis til Egilsstaða hlaðnar nemendum og kennurum.  Nemendur fóru til að taka þátt í Ólympíuleikum Austurlands sem er íþróttahátíð framhaldsskólanna á Austurlandi. Kennarar ætluðu hins vegar að nota daginn til fundahalda.
Þegar lagt var af stað var blíða á Höfn en eftir því sem austar dró versnaði veðrið og á Egilsstöðum var töluverð ofankoma og gjóla. Þar sem það var ófært um Oddskarð komust Norðfirðingarnir ekki.
Keppnisgreinar í Ólympíuleikunum eru fjölbreyttar og má þar t.d. nefna; kappát, upphýfingar, að hanga, bekkpressa auk alls kyns boltaíþrótta. Þegar yfir lauk stóðu ME-ingar uppi sem sigurvegarar. Okkar fólk sigraði í nokkrum greinum þar á meðal kappáti kvenna þar sem Iðunn Tara gúffaði í sig ógrynni af matvælum á örskotsstundu.

Á þriðjudagsmorgninum var Hornafjarðarmanni spilaður. Að þessu sinni var spilað á 16 borðum í upphafi og hafa keppendur sjaldan verið fleiri. Eftir sex umferðir komust 27 áfram og 9 þeirra komust í undanúrslit. Það voru þau Andri Snær, Heiða Vilborg og Sigrún Ellen sem náðu því að komast í úrslitaspilið. Það má segja að loft hafi verið magnþrungið á meðan að úrslitaumferðin var spiluð. Þegar yfir lauk var ljóst að Heiða Vilborg er nýr framhaldsskólameistari í Hornafjarðarmanna. Í öðru sæti var Sigrún Ellen og Andri Snær hafnaði í því þriðja. Öll hlutu þau verðlaun frá Hótel Höfn.
Þá var tilkynnt hvaða hópur varð hlutskarpastur í ratleiknum á mánudaginn. Það var hópur eitt en í honum voru: Daníel, Guðrún, Gunnar Ásgeirs, Óli Kristján, Rakel og Stefán Lárus. Þau eru aldeilis að græða því að þau fá miða á borðhald og skemmtiatriði árshátíðarinnar sem fram fer í kvöld á Hótel Höfn. Ballið verður síðan í Sindrabæ og spilar Skítamórall fyrir dansi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica