Febrúar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

27.02.2009 Febrúar

Almennur stjórnmálafundur á vegum Framsóknafélagsins

 

Framsóknarfélag Austur-Skaftafellssýslu boðar til almenns stjórnmálafundar í Nýheimum í kvöld, föstudaginn 27. febrúar og hefst fundurinn kl. 20.

Á fundinn mætir formaður Framsóknarflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og ræðir við fundarmenn um stjórnmálin.  Í framhaldi þess munu frambjóðendur í póstkosningu til uppröðunar á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi kynna sig. Það eru 13 sem bjóða sig fram í póstkosningu félagsmanna við val í 6 efstu sætin á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna alþingiskosninganna 25. apríl 2009. Í hópnum eru 7 konur og 6 karlar og  er yngsti frambjóðandinn er 18 ára og sá elsti er 65 ára.

Eftirtaldir gefa kost á sér:

1. sæti: Eygló Þóra Harðardóttir, alþingismaður

            Sigurður Ingi Jóhannsson, dýralæknir

1. – 2. sæti: Birgir Þórarinsson, sérfr. í alþj.samskiptum

                   Kristinn Rúnar Hartmannsson, myndlistamaður

1. – 3. sæti: Eysteinn Jónsson, bæjarfulltrúi

2. sæti: Bryndís Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur og form. SUF

3. – 6. sæti: Inga Þyri Kjartansdóttir, verkefnastjóri

4. sæti: Guðni Ragnarsson, bóndi

5. – 6. sæti: Einar Freyr Elínarson, nemi

                   Ásthildur Ýr Gísladóttir, nemi og vaktstjóri

                   Bergrún Björnsdóttir, nemi

6. sæti: Hansína Ásta Björgvinsdóttir, kennari

            Ingibjörg Júlía Þorbergsdóttir, viðskiptafræðingur

Kosið verður í póstkosningu allra flokksmanna í kjördæminu.   Kjörfundur hefst 24. febrúar og honum lýkur 4. mars.
Framboðslistinn í heild verður svo lagður fyrir aukakjördæmisþing 8. mars n.k. á Hótel Selfossi sem hefst  kl. 13:00.

Kjörseðlar vegna póstkosningar hafa verið sendir út og þeim skal komið í póst fyrir lokun pósthúsa miðvikudaginn 4. mars.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica