Febrúar
Tónskólinn
Tónskólinn
Tónskólinn

26.02.2009 Febrúar

Sindrabær tónlistarhús

 

Tónskóli Austur-Skaftafellssýslu sér nú fram á betri tíma með auknu húsrými en hann fær full afnot af Sindrabæ núna þegar unglingarnir í Þrykkjunni flytja í sitt nýja hús á Hafnarbraut 40.

Tónskólinn hefur í mörg ár verið til húsa  í Sindrabæ ásamt annarri starfsemi sem verið hefur í húsinu og óhætt að segja að þar hefur oft verið þröngt setið. Vefurinn hafði samband við Jóhann Morávek  skólastjóra og var hann spurður hvort þetta yrði ekki stórbreyting fyrir skólann og tónlistarstarfið:

 ,, Við erum öll spennt eftir breytingum hér og endurbótum og skólanum veitir ekki af  stærra húsnæði fyrir kennslu og fyrir almenna starfsemi skólans. Við höfum þurft að fá aðstöðu með tónleikahald  bæði í kirkjunni og í Nýheimum en nú verður þar breyting á með endurbótum á salnum og sviðinu í Sindrabæ.  Hugmyndin er að þó að fjölgi skólastofum þá verði salurinn að mestu leiti óbreyttur eins og hann er og að aðrir  hópar geti komið þar inn hvort sem er fyrir tónleikahald eða leiklist.

 Það þarf að taka til hendinni hér í Sindrabæ og margt þarf að gera til að hér  verði þokkalegur tónleikasalur annars vegar og svo hinsvegar að stofurnar verði þannig úr garði gerðar að við séum öll sátt. Ef á að fara í breytingar á húsinu þá viljum við sjá það í því formi að það verði eins og nýtt húsnæði ekki neinir plástrar settir hér og þar.

Ekki er komið á hreint hvenær framkvæmdir við húsið hefjast en vonandi verður það fyrir páska´´.

Nemendur í Tónskólanum eru 113 þar af 110 í einkatímum og  nemendur í forskóla eru rúmlega 70. Kennarar eru tíu að meðtöldum stjórnendum auk kennara sem sér um stundakennslu við barnaskólann í Öræfum. Aðsókn að skólanum er mikil og síðustu 8 ár hefur tala nemenda verið á bilinu 105-115  og umsækjendur hafa  alltaf verið fleiri en hægt hefur verið að sinna og núna eru um 20 á biðlista.

Jóhann segir að reynt sé að hafa kennsluna sem fjölbreyttasta og kenna á sem flest hljóðfæri  en vinsælustu hljóðfærin eru gítar, píanó og bassi og það eru flestir á biðlista eftir gítarnáminu.

Ég vil að fram komi hér, segir Jóhann, að við hér sem stjórnum skólanum vonum og viljum að lagt verði vel í þá vinnu og þessar breytingar á Sindrabæ, því forsendur okkar er að þetta gangi upp og sé vel gert. Við viljum sjá þetta varanlegt en ekki eitthvað til bráðabirgða og að Sindrabær verði tónlistarhús sem við Hornfirðingar getum verið hreykin af.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica