Tilboð í 43 leiguíbúðir sveitarfélagsins
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur fengið tilboð um kaup á öllum leiguíbúðum sveitarfélagsins utan þeirra sem tilheyra heilbrigðisstofnuninni. Þetta eru 43 íbúðir sem allar eru í leigu.Við vorum búnir að ræða við þessa aðila sem hér um ræðir í tengslum við byggingar á 2 nýjum parhúsum, segir Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, en þeim fannst ekki nægjanlega mikið umleikis hér á Hornafirði að vera bara með þessi parhús og í framhaldi af því kom sú hugmynd upp að gera tilboð í þessar eignir sveitarfélagsins og stofna leigufélag um þær.
Þetta eru ekki ævitýramenn heldur ábirgir og traustir aðilar sem verið hafa með umsvif á svæðinu og eru í fasteignarekstri.
Hjalti Þór segir að ekki sé endilega markmiðið að selja þessar íbúðir en það er gott að selja þær vegna þess að þá losnar sveitarfélagið undan þessum leigumarkaði og að það sem snýr að félagslega leiguíbúðarkerfinu verði þá leyst með öðrum hætti t.d. með rekstrarsamningi.
Ég hef góðar vonir um að náist samkomulag um kaupin við þessa aðila, það ber ekki það mikið á milli og þetta er tiltölulega hagstætt tilboð og þeir mundu yfirtaka gildandi leigusamninga.
Það vantar íbúðir hér á Hornafirði og okkur finnst ekki rétt að sveitarfélagið eigi að standa í uppbyggingu á íbúðarhúsnæði heldur væru það einkaaðilar eða verktakar sem gerðu það. Samkomulag við þessa umræddu aðila er háð því að þeir byggi fyrirhuguðu parhús.
Hjalti Þór tók fram að það væri algjörlega ljóst að þessar íbúðir yrðu ekki seldar öðrum aðilum en þeim sem nytu fyllsta traust.





Skrifa athugasemd