Febrúar
Ratleikur
Ratleikur

23.02.2009 Febrúar

Opin vika í FAS

 

Þessa viku munu eflaust margir í FAS leggja skræðurnar til hliðar og aðeins slaka á í náminu. Ástæðan er opin vika sem hófst í dag. Skipulag opinnar viku verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þrjá fyrriparta verða sameiginlegir atburðir sem allir taka þátt í og eftir hádegi og á föstudagsmorgni verður ýmis konar hópavinna í gangi, nemendur völdu sér hópa í síðustu viku. Vikan hófst á því að nemendur fóru í fimm hópum um bæinn á mismunandi staði þar sem þeir þurftu að leysa þrautir eða sprella eitthvað. Á hverri stöð voru kennarar sem sáu um að allt færi eftir settum reglum. Sá hópur sem hlýtur flest stig fær í verðlaun boðsmiða á borðhald og skemmtiatriði á árshátíðina n.k. föstudag. Á miðvikudaginn munu bæði nemendur og kennarar bregða undir sig betri fætinum og fara til Egilsstaða. Nemendur ætla að taka þátt í Ólympíuleikum Austurlands sem er íþróttahátíð ME, VA og FAS. Kennarar ætla hins vegar að eyða deginum í fundahöld.
Hápunktur opinnar viku verður svo föstudaginn 27. febrúar en þá verður árshátíð skólans haldin. Líkt og á síðasta ári verður borðhald og skemmtiatriði á Hótel Höfn en dansleikurinn verður í Sindrabæ þar sem hljómsveitin Skítamórall mun leika fyrir dansi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica