Febrúar
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)
Himnaríki á jörð/ Heaven on earth
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) [myndasafn]

19.02.2009 Febrúar

Málþing um miðlun, upplifun, ímynd og fræðslu í Ríki Vatnajökuls

 

Næstkomandi mánudag verður haldið málþing í Nýheimum um miðlun, upplifun, ímynd og fræðslu í Ríki Vatnajökuls.

Málþingið er einkum ætlað aðilum í ferðaþjónustu en er jafnframt opið öllum sem áhuga hafa á þátttöku. Það er haldið á vegum Háskólasetursins á Hornafirði, í samvinnu við námsbraut í Hagnýtri Menningarmiðlun við Háskóla Íslands.

Dagskráin er eftirfarandi:

Fundarsalur Nýheima, mánudagur 23. febrúar, kl. 13-16

13:00-13:40     Eggert Þór Bernharðsson: “HVERT ER STEFNT? Sögusýningar á Íslandi – Hverju er miðlað og hvernig?”.

13:40-14:20     Gunnþóra Ólafsdóttir: “Náttúrutengsl og upplifanir ferðamanna á Íslandi: fjögur tengslamynstur vellíðunar”.

14:20-14:40     Árdís Erna Halldórsdóttir: “Höfn – þéttbýlið við þjóðgarðinn”.

14:40-15:00     Þorvarður Árnason: “Fræðandi ferðaþjónusta”.

15:00-16:00     Umræður og fyrirspurnir

 Upplýsingar um fyrirlesara:

  Eggert Þór Bernharðsson er cand. mag. í sagnfræði. Hann er dósent í hagnýtri menningarmiðlun og umsjónarmaður samnefndrar námsbrautar við Háskóla Íslands.

-  Gunnþóra Ólafsdóttir er doktor í landfræði. Erindi hennar byggir á rannsóknum á tveimur hópum breskra ferðamanna á ferðalagi um náttúruleg svæði á Íslandi.

-  Árdís Erna Halldórsdóttir er masters-nemi í ferðamálafræði. Verkefni hennar fjallar um ímynd Hafnar sem áfangastaðar í augum ferðamanna.

-  Þorvarður Árnason er doktor í umhverfisfræðum og forstöðumaður Fræðaseturs H.Í. á Hornafirði.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica