Suðursveitungur Íslandsmeistari í sjöþraut karla
21.árs suðursveitungur, Bjarni Malmquist frá Jaðri, varð Íslandsmeistari í sjöþraut karla helgina 14. – 15. febrúar með 4905 stig (sem að er 7. besti árangur Íslendings frá upphafi í karla flokki og 4. besti hjá 22. ára og yngri) en helgina áður fékk hann fimm silfurverðlaun á Meistaramóti íslands (í þrístökki, stangarstökki, langstökki 60m grindahlaupi og 4x400m boðhlaupi). Árangurinn núna um helgina í einstökum greinum var:60 metra hlaup 7.16 sek
langstökk 6.93 m
kúluvarp 8.45 m
hástökk 1.74 m (bæting úr 1.70)
60m grindahlaup 8.64 sek (bæting úr 8.71)
stangarstökk 4.10 m (bæting úr 3.90)
1000 metra hlaup 2:43.05 mín:sek (bæting úr 2:45.44)
Í heildina bæting um 330 stig
Bjarni byrjaði að keppa í frjálsum íþróttum 13 ára og vann sinn fyrsta aldursflokka íslandsmeistaratitil 14 ára í þrístökki án atrennu. 17 ára fluttist hann til Reykjavíkur (yfir vetrartímann) og fór að æfa frjálsar en byrjaði svo á fullu að æfa 18 ára hjá Fjölni/Ármanni undir leiðsögn Stefáns Jóhannssonar. Þá urðu góðar framfarir í öllum greinum og strax í febrúar 2006 keppti hann í fyrsta sinn í 7 þraut og var þá t.d. í fyrsta skipti að prófa stangarstökk. Þá stökk hann 2,80m og endaði með 4125 stig í 3. sæti. Eftir það kom nýr þjálfari í stangarstökki og þá fóru hlutirnir að gerast og hálfu ári síðar var komin bæting um 1.m.
Í ársbyrjun 2007 skipti Bjarni um lið og fór úr USÚ yfir í Fjölni og byrjuðu strákarnir í Fjölni á því að setja íslandsmet í 4x400m boðhlaupi það ár sem þeir hafa svo margbætt eftir það og eiga þeir enn Íslandsmet karla í 4x400m boðhlaupi (3:21,66) auk þess sem þeir settu met í flokki 19-22. ára í 4x100m boðhlaupi (42,65), þegar þeir hlupu á betri tíma heldur en þáverandi landsliðssveit hljóp á í Evrópubikarkeppni.
Sumarið 2007 var Bjarni valinn í landslið Íslands í 400m grindahlaupi og í 4x400m hlaupi til að keppa á Evrópubikarkeppni landsliða. Veturinn 2008 vann hann svo fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki (þrístökk, 14,46 metrar) og mun það vera fyrsti Íslandsmeistaratitill A-skaftfellings í karlaflokki en Guðrún Ingólfsdóttir var Íslandsmeistari í fullorðinsflokki kvenna (sem skrár eru yfir).
Sumarið 2008 var hann valinn í landsliðið í langstökki, þrístökki og 4x100m boðhlaupi og keppti þar m.a. á móti tveimur köppum í langstökki sem voru að fara að keppa á ÓL í Peking.
Núna í vetur er hann orðinn fjórfaldur íslandsmeistari í flokki 19-22 ára, eitt silfur og eitt brons auk þess sem Fjölnir vann stigakeppnina í þeim flokki. Á Íslandsmeistaramóti fullorðinna fékk hann 5 silfur svo að eini sénsinn til að ná í gull var „einfaldlega“ að vinna sjöþrautina helgina eftir, sem að gekk svo upp eftir harða og mjög spennandi keppni (4905 stig), sem er hans mesta afrek.
Bjarni vill koma á framfæri kveðju til „krakkanna“ á Höfn sem hann var að þjálfa s.l. sumar, góðir hlutir að gerast hjá þeim og mörg af þeim mjög efnileg og hlakkar hann til að sjá þau sem flest á Meistaramóti 11-14 ára í byrjun mars.





Skrifa athugasemd