Febrúar
Ístölt á Óslandstjörn
Sunnudaginn 8.febrúar fóru fram fyrstu vetrarleikar Hestamannafélagsins Hornfirðings. Mótið var haldið á Óslandstjörn og fór vel fram í góðu veðri. Dómarar voru Sigrún Harpa Eiðsdóttir og Kjartan Hreinsson. Gerður var góður rómur af veitingum og var ekki annað að sjá en fólk skemmti sér konunglega. Myndir af mótinu eru komnar inná heimasíðu félagsins, sjá hér.
Stjórnin þakkar Mótanefnd fyrir þessa frábæru hugmynd og skemmtilegu tilbreytingu að halda mótið á þessum fallega stað sem við Hornfirðingar eigum og vill einnig þakka öllum sem komu að mótinu. Sérstakar þakkir fær skautafólk, sem sýndi hestum og knöpum mikla tillitssemi. Samkvæmt þessu sannast það, að það er hægt að stunda ólíkar íþróttir á sama stað og sama tíma og búa til um leið frábæra fjölskylduskemmtun.
Aðalfundur Hornfirðings verður haldinn 26. febrúar kl 20:00 í Stekkhól (verið vel klædd, það er kalt í Stekkhól).
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og lagabreytingar.
Stjórn Hornfirðings.





Skrifa athugasemd