Febrúar
Framkvæmdir við sundlaugina
Framkvæmdir við sundlaugina
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

13.02.2009 Febrúar

Sundlaugin opnuð á Skírdag

Stefnt er á að opna nýju sundlaugina á skírdag þann 9.apríl n.k. og þá á þessum áfanga byggingarinnar að vera lokið. Ekki er búið að ganga frá dagskrá í tilefni opnunar á þessu langþráða mannvirki en hún hlýtur að verða vegleg. Með tilkomu nýju laugarinnar verður gömlu sundlauginni lokað eftir að hafa þjónað sínu hlutverki í 56 ár. Ekki er komið á hreint hvað gert verður við  gamla sundlaugarhúsið eða ljóst fyrir hvaða starfsemi það myndi henta og á bæjarstjórinn Hjalti Vignisson von á að það verði til sölu.

Gamla sundlaugin var tekin í notkun á sjómannadaginn 1953 og þreyttu þá sjómenn boðsund við iðnaðarmenn og verslunarmenn. Fyrsta sumarið varð fólk að gera sér að góðu tjöld til að hafa fataskipti og  tréstampa til að þvo sér um fæturna en síðan var notast við fokhelda búnings-og sturtuklefa þar til að þeir voru að fullu frágengnir um 1961. Á þessum árum varð vatnsskortur í kauptúninu þess valdandi að ekki var hægt að starfrækja sundlaugina langtímum saman. (heimild: Saga Hafnar, Arnþór Gunnarsson).

Fyrir þá sem bíða með óþreyju eftir að komast í nýju laugina ,rennibrautirnar og allt það  þá eru aðeins 55 dagar þar til opnunin verður.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica