Febrúar
Leikhús
Leikhús

12.02.2009 Febrúar

Eftir lífið

Um miðjan janúar hófust æfingar á leikverkinu Eftir lífið. Þetta er verkefni á vegum Þjóðleikhússins og gengur undir nafninu Þjóðleikur en það er þróunarverkefni í tengslum við leiklist fyrir fólk á aldrinum 13 - 20 ára á Austurlandi. Þrjú leikverk voru sérstaklega skrifuð fyrir Þjóðleik og varð Eftir lífið fyrir valinu hjá leikhópi FAS. Tíu leikarar taka þátt í sýningunni og leikstjóri er Kristín Gestsdóttir. Gert er ráð fyrir frumsýningu seinni partinn í mars og þá mun leikritið verða sýnt á sameiginlegri uppskeruhátíð á Egilsstöðum í apríl.
Þess má að lokum geta að Skinney-Þinganes styður vel við leiklistarhópinn en aðstaða fyrir æfingar er í kaffistofunni í Óslandi. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica