Hátt í 200 manns heimsótti Slökkvistöðina í gær á 11.2 deginum
Miðvikudaginn 11. febrúar (11.2) héldu björgunaraðilar á Hornafirði upp á 11.2 daginn. Hann er haldinn árlega í tilefni þess að Neyðarlínan hóf starfsemi sína þann 1. janúar 1996. Þá leysti símanúmerið 112 af hólmi fjöldann allan af neyðarnúmerum á landinu, þar á meðal okkar eigið neyðarnúmer sem var 478-1919, og má segja að þetta hafi verið fyrsta neyðarnúmer hér hjá okkur á Höfn sem allur almenningur gat notað. Nú er með einu símtali í 112 (einn, einn, tveir) unnt að virkja á augabragði slökkvilið, lögreglu, almannavarnir, lækna, landhelgisgæsluna, sjúkraflutningsmenn, Barnaverndarstofu, Flugstoðir og Landlæknisembættið en um 300.000 símtöl berast til Neyðarlínunnar á hverju ári.
Í tilefni dagsins tóku forgangsaðilar á móti fólki við Slökkvistöð Hornafjarðar og kynntu tæki og tól, ásamt því að afhenda verðlaun sem dregin voru út í Eldvarnagetrauninni 2008. Sú heppna í ár er nemandi við Nesjaskóla, Hekla Natalía Sigurðardóttir, og óskum við henni til hamingju með verðlaunin.
Er það markmið sveitarfélagsins að rækta þær skyldur vel að vernda líf, heilsu, umhverfi og eignir almennings með rekstri öflugra viðbragðsaðilla hér í héraði.
Fyrir hönd Slökkviliðs Hornafjarðar viljum við þakka fyrir góðar móttökur og ánægjulegan dag því forvörnin er okkar sterkasta vopn.
Borgþór Freysteinsson
Slökkvilið Hornafjarðar
Eldvarnaeftirlit





Skrifa athugasemd