Hornfirðingur ver titil á Íslandsmeistaramóti í bekkpressu
Þann 31 janúar síðastliðinn var haldið Íslandsmeistaramót í bekkpressu á vegum KRAFT (Kraftlyftingasamband Íslands). Tveir Hornfirðingar tóku þátt að þessu sinni og voru það bræðurnir Ingi Stefán og Sævar Rafn Guðmundssynir. Þeir hafa báðir æft lyftingar frá unglingsaldri og æfa báðir í Sporthöllinni.
28 keppendur voru skráðir til leiks víðs vegar að á landinu. Sævar keppti í -75 kg flokki en Ingi í -100 kg flokki.
Sævar náði að verja Íslandsmeistara titil sinn frá því í fyrra og lyfti 130 kg og hlaut því fyrsta sæti í sinum flokki. Þess má til gamans geta að Sævar lyfti jafnmiklu og sigurvegarinn í flokknum fyrir ofan hann.
Ingi reyndi við 212,5 kg og hefði með því náð að vinna sinn flokk en tókst því miður ekki í þetta skiptið. Ingi hafði æft af krafti og pressaði upp 220 kg á æfingu stuttu fyrir mótið. Það er næsta víst að hann kemur helsterkur inn á næsta móti og hefur ekki sagt sitt síðasta í þessum flokk.





Skrifa athugasemd