Afrek í frjálsum
Bætti 7 daga gamalt USÚ met í langstökki
Sveinbjörg Zophoníasdóttir er greinilega í góðu formi núna. Hún bætti viku gamalt USÚ met sitt í langstökki á Meistaramóti Íslands fullorðinna um helgina þegar hún stökk 5.47 m og bætti gamla metið um 9 cm, hún komst í 3. sæti með þann árangur. Með þessum árangri nálgast Sveinbjörg afrekshópin hratt og geri hún sér vonir um að komast í hann fljótt. Jón Snorri keppti í kúlu og var mjög skammt frá meti sínu þar. Örvar keppti einnig á mótinu en hann náði sér ekki alveg á strik enda fyrsta stórmót sem hann tekur þátt í.
Krakkarnir hafa staðið sig frábærlega í frjálsum, þau stunda mörg hver æfingar 5 sinnum í viku og gerir aðstaðn á nýja velinum þeim það kleift þegar ekki eru frosthörkur.




Skrifa athugasemd