Nýr Starfsmaður hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði
Björk Pálsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði og mun hún meðal annars starfa við verkefnið Nýjar leiðir.
Nýjar leiðir er verkefni sem stutt er af menntamálaráðuneytinu og er hluti af mótvægisaðgerðum ríkisstjórnar. Verkefnið er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Framhaldskólans í Austur skaftafellssýslu, Þekkingarnets Austurlands, AFLs starfgreinafélags, Skinneyjar Þinganes, smábátafélagsins Hrollaugs og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Verkefnið er þríþætt það er að kortleggja þarfir ýmissa starfstétta til frekara náms, og bjóða upp á menntun í samræmi við þarfir og starfrækja frumkvöðlasmiðju.
Þegar fréttamaður vefsins hafði samband við Björk var hún á fullu við undirbúning fyrir næsta Sóknarbrautar-námskeið og bað ég hana að segja okkur frá þessu nýja verkefni.
Ég byrjaði að vinna hér á hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands eftir áramótin og er með tímabundna ráðningu við verkefnið Nýjar leiðir. Við erum nýfarin af stað með námskeiðið Sóknarbraut sem er hagnýtt námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja. Þátttakan er mjög góð eða um 35 manns. Samhliða námskeiðinu verður starfrækt frumkvöðlasmiðja, þannig að þátttakendur geta leitað til okkar með handleiðslu og aðstöðu til að vinna.
Mér líst vel á þetta verkefni það er fjölbreytt og spennandi segir Björk í lokin, það verður gaman að fylgjast með þessu og ég hvet alla sem luma á góðum hugmyndum eða vilja hefja nám að hafa samband.
Það er mikill áhugi hjá fólki hér á svæðinu á margskonar nýsköpun og fjölbreyttni í því sem verið er að gera hvort sem það er ferðaþjónusta handverk, matvælaiðnaður eða stofnun fyrirtækja. Námskeiðið verður búið lok í maí n.k. og þá geta þátttakendur reiknað út og komist að hvort grundvöllur er fyrir stofnun fyrirtækis eða framleiðslu.
Til gamans má geta þess að í hópi þeirra sem námskeiðið sækja eru 9 nemendur í Framhaldsskóla A-Skaft og gaman er að fylgjast með hvernig ungir og aldnir eiga skoðanaskipti og vinna að viðskiptaáætlunum.





Skrifa athugasemd