Klasadagur í Nýheimum
Klasadagur verður haldinn í Nýheimum á miðvikudag en þar mun Elvar Knútur Valsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands halda fyrirlestur um klasasamstarf, en hann ásamt Sævari Kristinssyni hjá Netspori munu leiða klasana í verkefnavinnu. Björg Erlingsdóttir þjóðfræðingur hjá menningarmiðstöðinni verður með fyrirlestur um leitina að klasageninu. Eftir fyrirlestra skiptast klasarnir upp í hópa og vinna að ákveðnu verkefni með aðstoð Elvars og Sævars. Klasarnir sem eru starfandi hér eru á sviði ferðaþjónustu, menningar, matvæla, fuglaskoðunar og þekkingar. Markmiðið með þessum degi er að efla þá klasa sem eru starfandi, stofna nýja klasa og að ná til nýrra aðila sem hafa áhuga á að slást í hópinn.
Áhugasamir hafi samband við Björk Pálsdóttur hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands í síma 470-8089 eða á bjorkp@nyheimar.is.
Að klasadeginum standa: Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ríki Vatnajökuls, Háskólasetrið á Hornafirði, og Menningarmiðstöð Hornafjarðar.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Dagskrá:
10:00-10:20 Leitin að klasageninu – Björg Erlingsdóttir þjóðfræðingur.
10:20-10:50 Klasar – Elvar Knútur Valsson Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
10:50-11:00 Umræður
11:00-12:00 Vinnuhópar
12:00-12:30 Hádegishlé
12:30-15:40 Vinnuhópar
15:40-16:00 Kaffihlé
16:00-16:40 Kynning hópa
16:40-17:00 Umræður





Skrifa athugasemd