Febrúar
Frá námskeiði í félagsmálafræðslu
Frá námskeiði í félagsmálafræðslu
Frá námskeiði í félagsmálafræðslu

06.02.2009 Febrúar

Sýndu hvað í þér býr

Félagsmálafræðsla

 

Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands hafa staðið fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr". Þessir aðilar skrifuðu undir samstarfssamning þar að lútandi í höfuðstöðvum UMFÍ við Laugaveg 170 í Reykjavík í nóvember sl. 12  námskeið eru að baki og hefur þátttaka í þeim verið með ágætum.

Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum.  Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og þjálfun í fundarsköpum.

Sigurður Guðmundsson hefur umsjón með námskeiðunum sem gengið hafa afar vel til þessa. Sigurður segir þátttakendur mjög áhugasama og margir hafi sýnt ótrúlegar framfarir. Greinilegt er að þörf var á fræðslu af þessu tagi en fyrirhuguð eru námskeið vítt og breitt um landið fram á vor.

Námskeið verða á þessu svæði á næstunni. 11. febrúar verður námskeið á Hrollaugsstöðum klukkan 13 til 16 og sama dag í grunnskólanum á Höfn í Hornafirði frá klukkan 18 til 22.

Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið  hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og  Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica