Febrúar
5.bekkur á skautum
5.bekkur á skautum
5.bekkur á skautum

05.02.2009 Febrúar

Skauta-skiptimarkaður

Á ganginum í Miðbæ

Loksins er komið skautasvell  hér í ríki Vatnajökuls og það kunna krakkarnir vel að meta. Eitt er þó  sem skyggir á gleði margra, skautarnir sem keyptir voru fyrir 2-3 árum eru orðnir alltof litlir og engir skautar fáanlegir á staðnum. Ekki er þó við verslunarstjórana á svæðinu að sakast því þeir hafa reynt til þrautar að fá skauta en því miður hvergi til. Nú hefur verslunarfólkið í Miðbæ ákveðið að koma á skiptimarkaði  og eins fyrir þá sem vilja losa sig við skauta og verður markaðurinn á ganginum í Miðbæ. Það er sárt fyrir þá sem  þurfa að standa hjá og horfa á þegar skólafélagarnir fara á skauta og eiga enga skauta .

Starfsfólkið í Miðbæ skorar á Hornfirðinga að bregðast vel við og  taka þátt  í þessu skautaátaki svo enginn þurfi bara að vera áhorfandi við skautasvellin.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica