FAS sigraði í alþjóðlegu olíuleitarkeppninni - nánari umfjöllun
Nánari umfjöllun um keppnina og ferð keppnisliðs FAS til London
Um nýliðna helgi var námsleikurinn OilSim spilaður í London og var þetta um leið úrslitakeppni í alþjóðlegu olíuleitarkeppninni árið 2008. Leikurinn á uppruna sinn í Færeyjum og er tölvuleikur hannaður af þjálfunarfyrirtækinu Simprentis. Tilgangurinn er að kynna olíuvinnslu og möguleika á störfum tengdum þeim iðnaði fyrir nemendum á framhaldsskólaaldri. Þá þurfa nemendur að athuga kosti þess að mynda hlutafélag um olíuvinnsluna. Leikurinn er einnig notaður á námskeiðum hjá olíuleitarfyrirtækjum víða um heim.
OilSim tölvuleikurinn hefur verið spilaður í framhaldsskólum í allmörgum löndum í nokkur ár og þrjú síðastliðin ár hefur farið fram lokakeppnin OilSim International í London. Núna var úrslitakeppnin haldin í Imperial College sem er 15.000 manna skóli og mjög virtur og eftirsóttur. Þessi skóli býður m.a. upp á nám tengt olíurannsóknum.
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu hefur tekið þátt í olíuleitinni á hverju ári frá 2003 og hefur oftast verið eini íslenski skólinn sem hefur tekið þátt. Tvö til fimm lið frá FAS hafa verið með hverju sinni. Vegna fyrirhugaðrar olíuleitar á Drekasvæðinu svonefnda var ákveðið að kynna leikinn fyrir íslenskum framhaldsskólum. Simprentis nýtur þar stuðnings Orkustofnunar og Menntamálaráðuneytisins. Í nóvember síðast liðnum var í fyrsta sinn haldin landskeppni á Íslandi og og þar varð lið Flipptuðruskransaranna frá FAS hlutskarpast en það er skipað þeim Andra Geir Jónassyni, Frey Sigurðarsyni og Níelsi Brimari Jónssyni sem allir eru fyrsta árs nemendur. Í þessari fyrstu landskeppni á Íslandi tóku sjö lið þátt og komu þau frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og FAS.
Það eru fyrst og fremst fyrirtæki sem stunda rannsóknir eða vinnslu á olíu sem styrkja OILSIM og gera úrslitakeppnina mögulega. Má þar nefna fyrirtæki eins og Chevron Upstream Europe, Maersk Oil North Sea Limited, Statoil Hydro og Sagex Petroleum ASA en það síðast nefnda tók að sér að borga fyrir ferð Íslendinganna á lokakeppnina. Þá eru flugfélögin Atlantic Airways og British Airways styrktaraðilar að keppninni.
Verðlaunin í landskeppninni eru ekki af verri endanum en þau eru þátttökuréttur í lokakeppninni, ferð til London og uppihald þar fyrir sigurliðið og fylgdarmann. Auk Íslendinga tóku þátt í keppninni lið frá Grænlandi, Færeyjum, Noregi, Danmörku, Skotlandi og nokkrir nemendur frá Imperial College mynduðu sérstakt gestalið. Í undankeppni þessara landa höfðu 3000 nemendur í 150 skólum tekið þátt. Eftir nokkru er að slægjast fyrir sigurvegaranna því verðlaunin fyrir fyrsta sætið eru 1000 pund og verðlaunagripur úr kristal.
Þegar keppninni lauk á laugardag stóð lið FAS uppi sem sigurvegari. Strákarnir höfðu bæði fundið arðbærar olíulindir sem gáfu ágætlega af sér og eins náðu þeir að gera hagstæða viðskiptasamninga við önnur lið. Þeir eru líka vissir um að taka þátt í næstu landskeppni OilSim sem verður líklega haldin í mars næst komandi.
Þjálfunarfyrirtækið Simprentis stendur einstaklega vel að þessari keppni. Öll umgjörð í kringum úrslitakeppnina var með miklum ágætum. Eftir stendur ógleymanleg helgi fyrir þátttakendurna í lokakeppninni og hver veit nema einhver þeirra eigi eftir að starfa við olíuiðnaðinn í framtíðinni.
Svona í lokin er vert að geta þess að strákarnir stóðu sig ekki bara vel í keppninni sjálfri. Þeir þægilegir og skemmtilegir ferðafélagar og í alla staði til mikils sóma.
Hjördís Skírnisdóttir
Hér á eftir kemur svo umfjöllun frá sigurliðinu um keppnina og ferðina til London
Frábær helgi í London
Ferðin okkar til London var afar skemmtileg og lærdómsrík. Okkur gekk eins og í sögu og komumst við fljótlega í fyrsta sæti í keppninni. Þessu sæti náðum við að halda alveg til loka keppninnar en hún tók um 6 klukkutíma. Liðsheild okkar var sterk sem slík enda bárum við nafnið Flipptuðruskransararnir.
Það má segja að við höfðum borið okkur með glæsibrag enda eina liðið í almennilegum liðsbúning en skólinn gaf okkur sérmerkta boli fyrir ferðina.
Það er gaman að segja frá því að fyrst þegar við skráðum okkur í þessa keppni vissum við lítið hvað við værum að fara eða til hvers þessi keppni mundi leiða. Þegar við unnum keppnina hér á Íslandi fengum við þær fregnir að við værum á leið til London og þar ættum við að keppa við Grænland, Færeyjar, Danmörk, Bretland og Noreg. Við héldum auðvitað að við ættum ekki séns í að vinna þessa keppni þar sem við vissum ekkert hvar við stóðum í samanburði við lið þessara landa.
Á þessum tveimur sólarhringum í London náðum við að gera mjög mikið. Föstudagurinn fór þó aðallega í að ferðast til London en við flugum frá Höfn á föstudagsmorgninum. Við komum á hótelið um tíuleytið á föstudagskvöldinu. Við fengum okkur að borða og fljótlega eftir það fórum við að hvíla okkur fyrir langan dag framundan.
Á laugardeginum vöknuðum við klukkan hálf sjö. Þegar við komum á keppnisstað fengum við smá kynningu um framhaldsskólann Imperial Collage. Í honum eru einungis 15 þúsund nemendur og þegar við löbbuðum um þessar byggingar voru við nú ansi áttavilltir og rötuðum lítið sem ekkert. Keppnin hófst um hálf tíuleytið og um eitt leytið vorum við orðnir bulletproof á það að vinna. Við fjárfestum vel í Bretunum og í hvert skiptið sem þeir boruðu þá hækkuðu okkar stig jafn mikið og þeirra en þegar þeir misstu stig þá héldum við okkar stigum svo að viðskiptavit okkar Íslendinganna kom sér vel þarna í Bretlandinu. Í lokin fengum við verðlaunin afhent en þau voru eitt stykki áletraður olíudropi úr gleri og 1000 pund. Eftir leikinn skelltum við okkur á „The Science Museum“ og „The Natural History Museum“ sem var í húsi sem er svona svipað stórt og álverið á Reyðarfirði sinnum 5.
Seinna um kvöldið var uppskeruhátíð keppninnar. Þá fóru allir á kínverskan veitingastað þar sem að við fengum eitthvað það mesta úrval af mat sem við höfum nokkurn tímann fengið. Eftir allt átið var lítið annað að gera en slaka á eftir daginn og við röltum upp á hótel.
Á sunnudeginum leyfðum við okkur að sofa fram eftir en svo fórum við skoðunarferð um London, sáum The London Eye, vorum hjá Big Ben þegar hún sló 12 á hádegi , fórum í The Tower Of London og margt fleira. Svo á leiðinni heim var aðeins verslað. Um 5 leytið var okkur keyrt upp á flugvöll og svo seinna um kvöldið var flogið heim á gamla góða Ísland.
Þetta var frábær ferð og við skemmtum okkur bara mjög vel. Við værum alveg til í að endurtaka þetta.
Takk fyrir okkur
Andri G, Freyr og Níels
Ps. Það mætti segja að við hefðum ownað London í drazl.





Skrifa athugasemd