Febrúar
Allir sjófærir bátar á veiðum
Helstu fréttir frá Hornafjarðarhöfn eru þær að nú eru allir sjófærir bátar á veiðum og er veiði þokkalega góð hjá trillunum, uppí sex tonn. Þrír bátar eru á netaveiðum og Jóna Eðvalds og Ásgrímur eru farin á gulldepluveiðar vestan við Vestmannaeyjar. Björn lóðs dró dýpkunarprammann, sem kom hingað fyrr í vetur, til Njarðvíkur og var kominn þangað um kl.18.í gær eftir tæpa tveggja sólarhringa siglingu. Áður en Björn lóðs heldur heim aftur fer hann í skoðun og botnmálningu í slippnum í Njarðvík og ef allt gengur samkvæmt áætlum er hann væntanlegur um helgina.




Skrifa athugasemd