Febrúar
Vindorka
Vindorka
Vindorka

03.02.2009 Febrúar

Virkjanakostir og nýting jarðefna í sveitarfélaginu

Að frumkvæði atvinnumálanefndar Hornafjarðar hefur verið ákveðið að ráðast í verkefni sem hefur að markmiði að skoða virkjanakosti í héraðinu og frekari nýtingu jarðefna. Verkefnið er nokkuð nýstárlegt á Íslandi og hefur Nýsköpunarmiðstöð Íslands samþykkt að taka þátt í verkefninu.  Sérstaklega verða skoðaðir möguleikar á virkjun sjávarorku, vindorku og notkunar á nýrri tækni við virkjun vatnsafls. Einnig verður skoðað hvaða möguleikar felast í nýtingu jarðefna í sveitafélaginu. Svæðið er stórt og býr yfir miklum fjölbreytileika í jarðfræðilegum skilningi.  Teknar verða saman upplýsingar um nýtingu íss, vatns, grjóts, sands og annarra jarðefna í heiminum og settar fram tillögur um hugsanlega nýtingu þeirra í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Gert er ráð fyrir að fyrst um sinn sé um grunnrannsókn á hagkvæmni að ræða sem mun taka um eitt ár.  Að þeim tíma liðnum verður tekin ákvörðun um hvort einstakar hugmyndir í verkefninu verði skoðaðar betur og hvernig koma mætti upp atvinnustarfsemi í framhaldinu.

Verkefnið verður unnið á Hornafirði á vegum Frumkvöðlasetursins í Nýheimum með stuðningi frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Reykjavík.  Stefnt er að því að ná samstarfi við aðila í Skotlandi sem hafa náð góðum árangri í virkjun vind- og sjávarorku.  Verkefnið er fjármagnað af Sveitarfélaginu Hornafirði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica