Febrúar
Sigurliðið
Sigurliðið
Sigurliðið

02.02.2009 Febrúar

Alþjóðlegir meistarar í olíuleit

Flipptuðruskransararnir okkar áttu aldeilis erindi til London um helgina. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í OILSIM olíuleitinni sem fram fór á laugardag. Keppnin hófst klukkan 9 á laugardagsmorgunin og spilað var í sex tíma. Alls tóku sjö lið þátt í keppninni en auk okkar spiluðu lið frá Færeyjum, Grænlandi, Bretlandi, Noregi, Danmörku auk þess sem lið frá Imperial Collage þar sem keppnin fór fram fékk að spila með.
Strákarnir okkar spiluðu af öryggi allan tímann. Þeir fundu bæði olíu og náðu góðum viðskiptasamböndum. Þegar yfir lauk stóðu þeir uppi sem sigurvegarar og fengu að launum 1000 pund og verðlaunagrip sem varðveittur verður í skólanum.
Á morgun ætlum við að fagna sigrunum með samkomu á sal klukkan 10:00. Við óskum þeim Andra, Frey og Níelsi til hamingju með stórglæsilegan árangur. 

Von er á frekari umfjöllun um þetta.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica