Flugfélagið Ernir fær skrúfuþotu aftur í rekstur
Cessna Conquest skrúfuþota Flugfélagsins Ernis lenti á Reykjavíkurflugvelli 30. janúar sl. eftir stóra skoðun og miklar endurbætur í Bandaríkjunum. Vél þessi er hraðfleyg og hagkvæm skrúfuþota og sinnir leiguflug bæði innanlands sem erlendis. Vélin hentar mjög vel í flug á Grænlandi og hefur Flugfélagið Ernir sinnt margvíslegum verkefnum þar. Vélin er einnig mjög hentug í sjúkraflug milli landa og hefur nýst mjög vel í slík verkefni. Þetta er mjög mikil bót fyrir rekstur Ernis að fá vélina aftur eftir langt stopp í Bandaríkjunum og má reikna með að leiguflug aukist með tilkomu vélarinnar.
Flugfélagið Ernir hefur um tveggja ára skeið sinnt áætlunarflugi á Höfn, Sauðárkrók, Bíldudal og Gjögur. Farþegastreymi milli áranna 2007 og 2008 jókst töluvert eða um ca 15% í heildina. Á Höfn jókst farþegastreymi um 10% milli ára, á Sauðárkrók og Gjögur um 20% og Bíldudalur stóð um það bil í stað. Það sem af er árinu 2009 hefur farþegafjöldinn staðið nánast í stað og vonast er til að það haldist áfram.





Skrifa athugasemd