Janúar
Leiftur gefið út eftir langt hlé
Eftir margra ára hvíld gaf Umf.Sindri aftur út blaðið Leiftur og var því dreift í öll hús í Sveitarfélaginu. Í fyrstu var stefnt að því að gefa það út í desember, en þegar menn komust af því hvert umfangið var þá varð útgáfudagurinn 29. janúar. Eins og fram kemur í Leiftri á Umf. Sindri merkisafmæli á árinu því þann 1. desember 2009 verður félagið 75 ára.
Gert er ráð fyrir að gefa út næsta tölublað í vor og svo aftur með haustinu og enda svo árið með veglegu afmælisriti þann 1. desember.
Stjórn Sindra vonar að þetta framtak mælist vel fyrir.
Hægt er að nálgast blaðið hér





Skrifa athugasemd