Janúar
Flipptuðrukransarnir
Flipptuðrukransarnir
Flipptuðrukransarnir

29.01.2009 Janúar

Flipptuðruskransarnir á leið til London

Á morgun, 30. janúar, leggja þeir Andri Geir, Freyr og Níels af stað í ferðalag til London. Tilgangur ferðarinnar er að taka þátt í tölvuleiknum OILSIM sem verður spilaður á laugardag ytra.
FAS hefur í nokkur ár tekið þátt í þessum leik en í nóvember s.l. fór í fyrsta skipti fram keppni á milli skóla á Íslandi og þar stóðu strákarnir uppi sem sigurvegarar.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum en þau eru ferð fram og til baka frá Höfn til London og þátttaka á þessu alþjóðlega móti í olíuleit. Auk liðsins frá Íslandi taka þátt í mótinu á laugardag lið frá Danmörku, Noregi, Færeyjum, Grænlandi og Bretlandi. Það lið sem vinnur fær 1000 pund í verðlaun. Aðal styrktaraðli OILSIM er norska fyrirtækið Sagex Petroleum ASA en það er einmitt eitt þeirra fyrirtækja sem hyggst sækja um rannsóknarleyfi á Drekasvæðinu svonefnda. 
Strákarnir eru að vonum spenntir yfir þessari ferð og tilbúnir í slaginn. Einhverjir hafa þó hnotið um nafnið á liðinu en að sögn strákanna er það sótt í smiðju Andrésar andar. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica