Janúar
Anna Mekkin, Katrín Ósk og Sólveig stóra systir
Öskudagurinn er skemmtilegur - Anna Mekkin, Katrín Ósk og Sólveig stóra systir (úr myndasafni)

29.01.2009 Janúar

Það þarf að halda vel á spilunum á næstu misserum

Fjárhagsáætlun 2009 - Samþykkt í Bæjarstjórn Hornafjarðar 28. janúar 2009

Fjárhagsáætlunin var unnin á miklum óvissu tímum í efnahagsmálum þjóðarinnar.  Tekjur ríkisins hafa dregist mikið saman og því er Jöfnunarsjóður sveitarfélaga ekki eins sterkur og undanfarin ár.  Tekjur sveitarfélagsins Hornafjarðar dragast því saman í sem nemur skerðingu úr Jöfnunarsjóði. 

Fjárhagsstaða Sveitarfélagsins Hornafjarðar stendur traustum fótum en halda þarf vel á spilunum á næstu misserum ef tryggja á hag fjölskyldna hér í sveitarfélaginu.  Mikilvægast af öllu er að fólk hafi atvinnu og sveitarfélagið þarf að leita allra leiða til að sporna gegn atvinnuleysi.  Ársfjórðungslega mun því sveitarfélagið endurskoða stefnu sína og útgjöld í málaflokkum sem snerta atvinnulífið og fjölskyldur.

Framkvæmt verður alls fyrir 280 m.kr. og skiptist það með eftirfarandi hætti:

A-    Hluti                                                                        280,0 m.kr.

  • Endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar                         70,0 m.kr.
  • Skólalóð við Grunnskóla Hornafjarðar                            25,0 m.kr.
  • Endurbætur á Tónskóla Hornafjarðar (Sindrabæ)            35,0 m.kr.
  • Sundlaug                                                                    80,0 m.kr.
  • Félagsmiðstöð/Ungmennahús                                        4,0 m.kr.
  • Leirusvæði                                                                  15,0 m.kr.
  • Endurbætur á fasteignum sveitarfélagsins                      10,0 m.kr.
  • Aðrar framkvæmdir                                                      14,0 m.kr.
  • Ófyrirséð                                                                     27,0 m.kr.

 

B-    Hluti                                                                          47,1 m.kr.

  • Hornafjarðarhöfn þekja á Álaugareyjarbryggju                 22,6 m.kr.
  • Vatnsveitu-/ og fráveituframkvæmdir                              24,5 m.kr.

 

Samtals:   327,1 m.kr.

 

Helstu niðurstöðutölur í fjárhagsáætlun eru:

 

Rekstrarafgangur A-hluti:                                         21.972 m.kr.

Handbært fé í árslok A-hluti                                     377,3 m.kr.

 

Rekstrarafgangur (samantekið A og B hluti):                       2,5 m.kr.

Handbært fé í árslok (samantekið A og B hluti) :     377,9 m.kr.

 

 

Þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2010 - 2012

Þriggja ára áætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar var lögð fram til fyrri umræðu þann 28. janúar.  Fjárhagsáætlunin er  á  föstu verðlagi og allar upphæðir miðast við fjárhagsáætlun 2009 nema upphæð til fjárfestinga og lána.  Í áætluninni er gert ráð fyrir framkvæmdum að upphæð 666,1 m.kr., á árunum 2010 til 2012.  Áætlunin gerir ráð fyrir að aðalsjóður framkvæmi fyrir 600,0 m.kr. og  taki langtímalán að upphæð 150,0 m.kr. Á móti eru afborganir langtímalán 244,6 m.kr.

 

Mikil óvissra ríkir um þróun efnahagsmála á þessu tímabili.  Verðbólga er mikil og tekjustofnar sveitarfélaga rýrna líkt og hjá öðrum opinberum aðilum.  Þess vegna er ekki sett fram heildstæð áætlun um framkvæmdir á næstu þremur árum.   Allt bendir þó til þess að sparifé Sveitarfélagsins Hornafjarðar dugi til þess að halda úti töluverðum framkvæmdum á næstu árum.  Gert er ráð fyrri framkvæmdum upp á 280 m.kr. á árinu 2009, 200 m.kr. á árinu 2010, 200 m.kr. á árinu 2011 og 200 m.kr. á árinu 2012.  Allar þessar framkvæmdir verða fjármagnaðar með sparifé sveitarfélagsins og veltufé frá rekstri nema árið 2012 þegar gert er ráð fyrir lántöku að upphæð 150 m.kr.

 

Það eru mörg verkefni sem bíða þess að komast til framkvæmda en lögð er sérstök áhersla á að við undirbúning þeirra verði litið til stofnkostnaðar en þó ekki síður til rekstrarkostnaðar. Sveitarfélög verða að skoða hlutina til enda við þær aðstæður sem nú ríkja.  Þegar sveitarfélög eiga erfitt með að ná endum saman og veltufé frá rekstri minnkar verður að gæta þess að auka ekki rekstrarútgjöld meira en nauðsynlegt er.  Á það bæði við um þjónustu við íbúa og rekstur fasteigna.

 

Það var samþykkt við fyrri umræðu að starfsmönnum verði falið að gera áætlun um stofn- og rekstrarkostnað eftirtalinna verkefna sem koma til framkvæmda á næstu þremur árum.  Ekki fyrr en að þessar upplýsingar liggja fyrir verði tekin ákvörðun um forgangsröðun þeirra:

 

  • Endurbætur á leikskólum Hornafjarðar til að mæta kröfum nýrra laga um leikskóla
  • Framkvæmdir í tengslum við Hafnarvík-Heppu verkefnið
  • Vetraraðstaða fyrir íþróttafólk
  • Vallarhús við Sindravelli
  • Tengibygging Heppuskóla og sundlaugar
  • Innisundlaug
  • Listasafn Svavars Guðnasonar
  • Færsla þjóðvegar í þéttbýli
  • 3. áfangi að hellulögn á Hafnarbraut
  • Endurbætur á götum, plönum, gangstéttum og gangstígum í dreif- og þéttbýli í sveitarfélaginu
  • Grófhreinsun fráveitu
  • Úrbætur í umhverfismálum, s.s. moltugerð og urðunarsvæði í Lóni
  • Uppbygging aðstöðu fyrir verk- og listgreinakennslu við Grunnskóla Hornafjarðar
  • Viðhald eigna í þéttbýli og dreifbýli í sveitarfélaginu

    

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica