Janúar
Jarðboranir að störfum við Hoffell
Jarðboranir að störfum við Hoffell

28.01.2009 Janúar

Heitt vatn er víða að finna í sveitarfélaginu

Þann 21. janúar sl. skrifuðu landeigendur í Hoffelli undir samning við forstjóra RARIK um áframhaldandi jarðhitaleit þar.  Í samningnum er gert ráð fyrir að RARIK hafi næstu fjögur ár til að rannsaka betur borholuna og taka endanlega ákvörðun um hvort virkja eigi jarðhitan í Hoffelli.

Þetta er afar stórt skref en unnið hefur verið að gerð samningsins um nokkurt skeið.  RARIK mun þó tæplega hefja framkvæmdir fyrr hefja leit eða framkvæmdir fyrr en seint á þessu ári eða byrjun þess næsta.  Undirbúningur mun þó fara á fullt, bæði skipulagsvinna og eins hönnun á veitunni 

Byrjað var að kanna jarðhita hér á suðausturhorninu árið 1992 og hefur komið í ljós að heitt vatn er víða að finna allt frá Skaftafelli austur í Nesjasveit. Við Hala er yfir 90°heitt vatn og efnishiti þess er yfir 100°. Ómar Bjarki Smárason jarðfræðingur er að fara í nánari rannsókn á svæðinu við Skaftafell þar sem líkur benda til að hægt verði að fá 70-80° heitt vatn.

Við þurfum að bora við Sandasel, segir Ómar, einnig milli Bölta og Hæða til að leita að sprungunni. Við erum að vinna að því að staðsetja vinnsluholu og miklar líkur eru á að einhver af þeim rannsóknarholum sem við borum á 400 m. dýpi skili vatni sem hægt verður að nota og erum komin með yfir 35° heitt vatn á 160 m. dýpi.Við skoðum  nánar svæði í Suðursveit og Mýrum við Hrollaugsstaði  og vel lítur út með hita við Rauðaberg og verður það skoðað með vorinu.Í Hoffelli er heita vatnið komið yfir 60° í 500 m. dýpi og efnafræði vatnsins segir okkur það að þar megi vænta að fáist 70-80 stiga heitt vatn sem er nægjanlegt til að borgi sig að leiða það til Hafnar.

Þá er spurningin hvort þarna sé nægjanlega mikið vatn fyrir þéttbýlissvæðið og til að fá svar við því þarf að bora tilraunavinnsluholu.

Ómar segir að hugsanlega væri hægt að fá viðbótar vatn frá Rauðabergi og jafnvel frá Svínafelli í Nesjum sem tengt yrði inná veituna frá Hoffelli. Gera má ráð fyrir að vinnsluhola kosti um 100mkr.

Þó ekki fengist nægjanlegt heitt vatn til hitunar húsa og til heimilisnota á þéttbýlisstöðunum  getur þetta heita vatn gjörbreytt aðstöðu fyrir ferðaþjónustu og ýmsar atvinnugreinar á svæðinu .

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica