Janúar
Húsfyllir var á Þorrablót Skaftfellingafélagsins
Þorrablót Skaftfellingafélagsins var haldið laugardaginn 24. janúar 2009. Dagskráin, sem var stjórnað af Gunnari Þór frá Klaustri, samanstóð af gamansögum veislustjórans, fjöldasöng, einsöng Helenar Mörtu Stefánsdóttur frá Hofi, eftirhermu Jóhannesar Kristjánssonar og síðast en ekki síst spilamennsku tveggja fornfrægra hljómsveita, annarsvegar Eyglóar úr Öræfunum og Væringjanna frá Klaustri. Húsfyllir var og var gerður góður rómur að bæði líkamlegri og andlegri næringu.
-SMS





Skrifa athugasemd