Janúar
Verkkennsla FAS
Verkkennsla FAS
Verkkennsla FAS

26.01.2009 Janúar

Bætt aðstaða til verknámskennslu hjá FAS

 

Tekin hefur verið í notkun aðstaða fyrir verknámskennslu í FAS og er hana að finna í kjallara gamla Vöruhússins hjá Kaupfélaginu. Hér er um að ræða sameiginlegt verkefni hjá Grunnskólanum, Menningarmiðstöðinni og FAS. Þessi aðstaða er fyrst og fremst hugsuð af skólans hálfu til verklegrar kennslu í vélstjórn og málmgreinum.
Í þessari viku hafa nemendur í rafmagnsfræði nýtt sér aðstöðuna og rétt gáfu sér tíma til að líta upp snúrum og tökkum. Það er ómetanlegt að hafa aðstöðu sem þessa og geta fengist við hlutina af eigin raun í stað þess að lesa eingöngu um þá í bókum. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica