Janúar
Austurfjörur yfir vetrartímann

22.01.2009 Janúar

Sóknarbraut

Námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja

Lumar þú á góðri hugmynd sem þig langar að koma í framkvæmd?  Nú er kjörið tækifæri til frekari aðgerða þar sem fyrirhugað er að bjóða upp á námskeiðið Sóknarbraut á Höfn.

Sóknarbraut er námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja sem hefur verið haldið víða um land á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands með góðum árangri. 

Helsta markmið námskeiðsins er að brúa bilið á milli hugmyndar og markvissrar framkvæmdar með því að leiðbeina og þjálfa þátttakendur í því að takast á við frumkvöðlastarf, stjórnun og rekstur fyrirtækis.  Námskeiðið er opið fyrir alla en hentar vel þeim einstaklingum sem hafa hug á því að stofna eigið fyrirtæki, eða eru nú þegar að stjórnendur í fyrirtækjum. Ekki er gerð krafa um undirbúningsmenntun.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu þætti sem tengjast fyrirtækjarekstri meðal annars; stefnumótun, viðskiptaáætlun, markaðsmál, verkefnastjórnun og fjárhagsáætlanir. Kennarar á námskeiðinu verða G.Ágúst Pétursson og Sigurður Steingrímsson, þeir hafa góða og mikla reynslu á þessu sviði.

Námskeiðið er hluti af verkefninu Nýjar leiðir menntaverkefni sem er styrkt af menntamálaráðuneytinu og er hluti af mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar, því verður þátttökugjald einungis 4.250. Nýjar leiðir er samstarfsverkefni  Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, Þekkingarnets Austurlands, Skinneyjar Þinganes h/f, AFLs Starfsgreinafélags og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Nánari upplýsingar veita Björk Pálsdóttir  í síma 470-8089 bjorkp@nyheimar.is og Ari Þorsteinsson 470-8080 arith@nmi.is hjá Impru Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Kennslan fer fram í Nýheimum á föstudögum frá 10-14 í níu skipti. Námskeiðið hefst 30.janúar og  stendur til 8.maí. Umsóknarfrestur er til 26.janúar.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica