Janúar
Val á Hornfirðingi ársins 2008
Tilnefningar óskast
Eins og flestum er kunnugt um voru það Eiríkur Hansson kennari og Ísjakarnir, lególið Grunnskóla Hornafjarðar sem hlutu titilinn Hornfirðingur ársins 2007. Nú styttist í Þorrablót Hornafirðinga en það verður haldið n.k. laugardagskvöld. Þar verður tilkynnt um úrslit valsins á Hornfirðingi ársins 2008. Tilnefningum á að skila á netfangið hornfirdingur@nyheimar.is fyrir klukkan 15:00 föstudaginn 23. janúar 2009.





Skrifa athugasemd