Janúar
Bæjarstjórar funda um heilbrigðismál
Bæjarstjórar funda um heilbrigðismál
Bæjarstjórar funda um heilbrigðismál

19.01.2009 Janúar

Bæjarstjórar funda vegna þjónustusamninga Heilbrigðisstofnana

Eins og komið hefur fram í fréttum undanfarið eru áformaðar viðamiklar skipulagsbreytingar í heilbrigðiskerfinu og í framhaldi af því hafa nokkur sveitarfélög lýst yfir áhuga á að gera þjónustusamninga við ríki  um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu svipað því sem Hornfirðingar hafa verið með undanfarin 12 ár.

 

Síðastliðin föstudag komu bæjarstjórarnir Árni Sigfússon, Reykjanesbæ og Elliði Vignisson, Vestmannaeyjum  til Hornafjarðar og funduðu með  Hjalta þór Vignissyni,bæjarstjóra og Guðrúnu J. Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suð-Austurlands, um verkefnið. Þeir kynntu sér  þá samninga sem gerðir hafa verið og þau samningsdrög sem nú er unnið að, en núverandi samningur fyrir Heilbrigðisstofnunina er útrunninn og unnið er að gerð nýs samings. Þeir kynntu sér einnig alla þá starfsemi sem nú er á vegum stofnunarinnar, en hún er afar fjölbreytt. Þeir sögðu að þessi heimsókn hafi verið afar gagnleg áður en lengra er haldið í samningum um yfirtöku verkefna í heilbrigðismálum.

 

Á meðfylgjandi mynd eru taldið frá vinstri: Árni Sigfússon, Guðrún Júlía Jónsdóttir, Elliði Vignisson og Hjalti Þór Vignisson

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica