Janúar
Hótel Höfn
Hótel Höfn
Hótel Höfn

16.01.2009 Janúar

Kósíkvöld og spjallfundur

sl. þriðjudag á Hótel Höfn

Samband Austur Skaftfellskra kvenna, Tengslanet kvenna á Austurlandi og Kvenfélagasamband Íslands boðuðu til spjallfundar og kósíkvölds á Hótel Höfn sl. þriðjudag þar sem Sigurlaug Víborg formaður Kvenfélagasambandsins bauð konur velkomnar.

Una María Óskarsdóttir kynnti landsátak Kvenfélagasambands Íslands um aukna hreyfingu. Þetta er heilsuátak þar sem rætt er um bætt mataræði og eins kynnt hvernig á að hreyfa sig og borða rétt. Kynnt var á fundinum fyrirhugað átaksverkefni  Bændasamtakanna, Kvenfélagasambands Íslands og Ungmennafélags Íslands með félagsmálaskóla  og verður félagsmálanámskeið haldið hér á Höfn 11.febrúar. Björk Sigurgeirsdóttir og Auður Ingólfsdóttir kynntu starfsemi T.A.K Tengslanet  Austfirskra kvenna en þetta eru samtök kvenna á Austurlandi og er hlutverk þess að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra , þekkingu og samstarf og þannig styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega á hverjum þeim vettvangi sem þær kjósa að hasla sér völl.

Formenn kvenfélaganna í Suðursveit , Mýrum, Nesjum og Lóni sögðu frá starfsemi félaganna sem skipað hefur veglegan sess í hverri sveit en á Höfn liggur þessi  mikilvægi félagsskapur í dvala sem er  vonandi aðeins tímabundið.

 

Hátt í hundrað konur sóttu fundinn og áttu þar bæði notalega og fræðandi samverustund sem vonandi gefur sem flestum aukna bjartsýni og áhuga á þessu heilsuátaki.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica