Janúar
Sigurvegarar 2008 Hornafjarðarmanna
Sigurvegarar 2008 Hornafjarðarmanna
Sigurvegarar 2008 Hornafjarðarmanna

11.01.2009 Janúar

Metþátttaka á Hornafjarðarmeistaramótinu

Hornafjarðarmeistaramótið 2008

Metþátttaka var á Hornafjarðarmeistaramótinu í Nýheimum milli hátíða. Alls spiluðu 130 keppendur. Ánægjulegt er að börn og unglingar sækja mótið betur en áður og undirstrikar það markmið mótshaldsins þ.e. að vera skemmtileg og fjölskylduvæn keppni þar sem allir eiga sömu möguleika.

Mótið gekk vel fyrir sig og stóð Eymundur Ragnarsson uppi sem sigurvegari. Í öðrusæti var Björn Gísli Arnarson og Kristjana Ragna Jensdóttir í því þriðja.

 

Íslandsmeistaramótið 2009

 

Mótið verður föstudaginn 13. febrúar n.k.  kl 20:00 í  Skaftfellingabúð Laugarvegi 178 Reykjavík. Þriggjamanna úrslitaumferð verður að venju í upphafi þorrablóts Hornfirðinga daginn eftir. Úrslitin á  mótinu í fyrra voru sérstök að því leytinu að til úrslita spiluðu frænkur og mæðgur; Elín Arnardóttir sigraði, önnur varð Þórhildur dóttir Elínar Örnu Gunnarsdóttur sem varð þriðja.  Góð þátttaka hefur verið undanfarin ár m.a. mættu háskólanemar vel í síðustu keppni og hafa þátttakendur átt ánægjulegar samverustundir þar sem gamlir kunningjar hittast og spjalla saman.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica