Ríki Vatnajökuls - Desember
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
Áramótapistill Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra
      <alt>Áramót</alt>
Góðir Hornfirðingar, jólaleikurinn 2008
Sveitarfélagið Hornafjörður og Rolf Johansen og co undirrita samning um átöppun á vatni
      <description>Þann 29. desember 2008 undirrituðu þeir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar og Atli Kristjánsson, fh. Rolf Johansen Co ehf., samning um að byggja upp starfsemi á átöppun á vatni frá Hornafirði.  Aðilar hafa undanfarna mánuði unnið að þessum samningi sem gerir ráð fyrir að uppbygging á verksmiðjunni verði hafin innan fjögurra ára frá undirritun samningsins og að átöppun hefjist innan fimm ára.  Tíminn þangað til verði nýttur til að hanna og byggja upp veitu fyrir verksmiðjuna og vinna að uppsetningu verksmiðjunnar.</description>
      <alt>Sveitarfélagið Hornafjörður og Rolf Johansen</alt>
Hornafjarðarmeistaramótið í HornafjarðarMANNA
      <description>Hornafjarðarmeistaramótið verður að venju milli hátíða. Á síðasta móti voru tæplega hundrað keppendur og var keppnin sérstaklega spennandi, bæði þurfti bráðabana í úrsláttakeppninni og úrslitaspilinu.
Þetta er tólfta árið sem mótið er haldið og sigurvegarar hafa orðið þessir:</description>
Skötuveisla í Holti á Mýrum
      <description>Mýramenn tóku sér stutt frí frá jólaundirbúningi og bústörfum til að halda sameiginlega skötuveislu í félagsheimili sínu. Ungir sem aldnir gæddu sér á dýrindis skötu en þeir sem ekki treystu sér í skötuna kýldu vömbina með saltfisk og þjóðlegu meðlæti. Boðið var uppá ís í eftirrétt, hellt var upp á kaffi og málin skeggrædd á meðan börnin hlupu úr sér mesta jólaspenninginn. Þetta er í fyrsta skipti sem sameiginleg skötuveisla er haldin í Holti og var mæting með besta móti. Eflaust eru margir ánægðir að losna við skötuilm af heimilum sínum svona beint ofan í Ajax ilminn.</description>
Endurnýjun á hljóð- og útsendingakerfi í Hafnarkirkju
      <description>Í gegnum árin hefur það tíðkast í stærri athöfnum við Hafnarkirkju, að aðstandendur hafa lagt í talsverðan kostnað við leigu á útsendingabúnaði til að varpa athöfnum bæði í hljóðvarpi sem og í sjónvarpi. Hefur sá búnaður leyst þann vanda sem verður, þegar kirkjan er full og vísa þarf fólk á Hótel Höfn til að hlýða á athöfnina. Hefur það lengi verið draumur sóknarnefndar Hafnarsóknar að geta leyst þetta á varanlegan hátt og er sú lausn nú í sjónmáli.</description>
Björgunarskipinu Ingibjörgu stolið í morgun
      <description>Björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Höfn í Hornafirði, Ingibjörgu, var stolið í morgun. 
Skipið lagði úr höfn um klukkan 7:00 og var stefnan tekin austur með landi. Um þremur tímum síðar uppgötvaðist að skipið var ekki á sínum stað. Því var hins vegar siglt aftur til hafnar um klukkan 11:00 og kom þá í ljós að það hafði verið tekið ófrjálsri hendi. 
Um borð var einstaklingur sem er að öllum líkindum búinn að dvelja þar frá því á þriðjudag. Í dagbók hans, sem fannst í skipinu, er að finna nákvæmar lýsingar á öllum hans athöfnum þennan tíma, m.a. lýsingar á því hvernig hann braust inn í það og hvernig hann las sér til um virkni þess í bókum sem eru um borð.</description>
Annáll Menningarmiðstöðvar 2008
      <description>Árið 2008 er búið að vera annasamt ár hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. 
Aðsókn á starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar hefur verið góð í ár og menningarlífið hefur blómstrað. Má áætla að gestir að söfnum, viðburðum og sýningum séu um 43.000 og þá eru ótaldir þeir sem hafa sótt ráð og aðstoð hjá Menningarmiðstöðinni við ýmis undirbúning viðburða, styrkumsóknir og annað. 
Menningarmiðstöðin hefur í vaxandi mæli boðið fyrirtækjum, hópum og einstaklingum á svæðinu ráðgjöf við að byggja upp menningartengda ferðaþjónustu og eða aðstoð við að halda viðburði, ásamt því að standa sjálf fyrir viðburðum og á því er engin breyting í ár.</description>
Eitt hreindýr hefur haldið sig í Hellinum
      <description>Undanfarnar vikur hefur eitt hreindýr haldið sig í Hellinum (eyjunni) sem er við innsiglinguna til Hornafjarðar, og er talið líklegt að það hafi synt yfir álinn frá Austurfjörum þar sem nokkur hreindýr hafa haldið sig. Svo er bara spurningin sem líklega er erfitt að fá svar við, var sundið milli lands og eyjar svo erfitt að dýrið  leggur ekki í að fara til baka. Hreindýrið virðist hafa nóg að éta en hvort nægjanlegt drykkjarvatn er á eynni höfum við ekki fengið upplýsingar um.</description>
Eldvarnarátak Slökkviliðs Hornafjarðar
      <description>Undanfarin ár hefur Slökkvilið Hornafjarðar farið í grunnskólana og leikskólana  á sínu starfssvæði og verið með öfluga forvarnarkynningu. Þetta átak byrjaði í nóvember þar sem Landssamband slökkviliðsmanna ?og sjúkraflutningamanna  auk styrktaraðila efna til slíkrar viku.
Slökkviliðsmennirnir okkar fara og halda kynningu fyrir börnin um eldvarnir á heimilum og sínum skóla þar sem farið er yfir reykskynjara, slökkvitæki og rýmingaráætlanir.  Þessi árstími er tilvalinn því í hönd fer aðventan með allri sinni ljósadýrð.  Það hefur verið okkar reynsla af þessari fræðslu að bestu eldvarnareftirlitsmennirnir séu krakkarnir sem fá þessa fræðslu,  þau fara með upplýsingarnar inn á sín heimili, oft skapast góð umræða um þessi mál sem alltaf þarf að fara reglulega yfir.</description>
Hornfirðingar í Útsvari í kvöld
      <description>Í kvöld keppa Hornfirðingar á móti Hafnfirðingum í Útsvari í Sjónvarpinu. Mikill hugur er í okkar fólki og þau staðráðin í að gera sitt besta en um leið að hafa gaman af. Eins og allir vita eru fulltrúar okkar í keppninni mikið úrvalsfólk og vel að sér í ólíklegustu málum. Þau hittast í dag og ráða ráðum sínum, Þórgunnur hefur séð um hlaupin enda frá á fæti, Kristín hefur sýnt ótrúlega leikhæfileika og Siggi, með sinni stóísku ró - virðist vita svörin við flestum spurningum lífsins. Þetta er einvala lið og sama hvernig úrslitin verða erum við stolt af okkar góða fólki.</description>
Bréfmaraþon Amnesty International
      <description>Bréfamaraþon Amnesty International verður haldið hér á Höfn í bókasafninu laugardaginn 13. des. kl. 10 -14. Þetta er árlegur viðburður þar sem fólki gefst tækifæri til að koma saman og skrifa fórnarlömbum mannréttindabrota bréf og kort, á aðventunni. Einnig skrifar fólk undir fyrirfram skrifuð bréf sem stíluð eru til stjórnvalda víða um heim, þar sem þrýst er á um lausn samviskufanga eða að fallið verði frá dauðarefsingu. Sumir vilja skrifa sín eigin bréf og þá fylgja með leiðbeiningar frá okkur um hvernig það er gert, það er hvernig orðalag skal vera og annað í þeim dúr. Skrifstofa Amnesty International á Íslandi sér síðan um að koma bréfunum til skila.</description>
      <alt>Amnesty International</alt>
180 gestir sóttu aðventustund Skaftfellingafélagsins
      <description>Árleg aðventustund Skaftfellingafélagsins og Söngfélagsins var haldin í Skaftfellingabúð sunnudaginn 7. desember S.L. Söngfélagið, undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar, söng 11 jólalög við góðar undirtektir og kom gestum í jólaskap á aðventunni. Glæsilegum veitingum af kaffiborði Ingu Jónu og Söngfélaganna voru gerð góð skil. Tveir einstaklega skemmtilegir jólasveinar, Kjetkrókur og Skyrgámur, sáu um að skemmta ungviðinu og dönsuðu dátt í kringum jólatréð við harmonikkuundirleik Kristins Kjartanssonar og píanóleik Friðriks söngstjóra.</description>
Fjöldi manns mætti á miðbæjarsvæðið þegar kveikt var á jólatrénu
      <description>Fjöldi fólks var samakomið á miðbæjarsvæðinu á Höfn kl 17.00 í dag þegar kveikt var á jólatrénu. Haukur Þorvaldsson stjórnaði dagskránni sem þar fór fram. Meðal þess sem þar fór fram var að félagar úr lúðrasveitinni léku, Samkór Hornafjarðar söng, leikskólabörn sungu, Þórgunnur Torfadóttir flutti ávarp,séra Sigurðu Kr. flutti hugvekju og að sjálfsögðu mættu jólasveinarnir á staðinn. Veður var hið fegursta,logn hiti rétt við frostmarkið og smá snjór svona rétt til að gera allt enn jólalegra.</description>
Jólaglaðningur frá Kiwanisklúbbnum Ós og Nettó
      <description>Félagsþjónustu Hornafjarðar barst 6. des. 200 þúsund kr. gjafabréf á matarúttekt í Nettó. Gefendurnir voru Kiwanisklúbburinn Ós sem gaf 150 þúsund og Nettó bætti 50 þús. við gjöf þeirra Ós-félaga. Gestur Halldórsson forseti Óss tók við gjafabréfinu ásamt Miralem Haseta gjalkera Óss.  Mánudaginn 8. desember afhendir forseti svo Jóni félagsmálafulltrúa þessi gjafabréf  með von um að  þessu verði skipt milli nokkura heimila og yrði þetta kærkominn glaðningur fyrir jólin því í okkar litla bæjarfélagi eru vissulega til heimili sem eru hjálpar þurfi.</description>
Jólaljósin tendruð.
      <description>Á sunnudaginn kemur kl. 17:00 verða ljósin tendruð á jólatré Hornafjarðar í miðbænum.  
Við athöfnina leikur Lúðrasveit Hornafjarðar jólalög undir stjórn Jóhanns Morávek.
Flutt verður ávarp og hugvekja. Að venju kveikir nemandi í 1. bekk í Nesjaskóla ljósin á trénu sem kemur að þessu sinni frá Haukafell á Mýrum. Samkór Hornafjarðar syngur, stjórnandi er Kristín Jóhannesdóttir. Þá koma leikskólabörn og taka lagið.</description>
Hrútaskráin komin út
      <description>Kornrækt gekk vel í Hornafirði í sumar og hafa kornakrar stækkað og fjölgað úr um 100 ha. í 150 ha. og nýir kornræktendur bæst við. Grétar Þorkelsson hjá Búnaðarsambandinu segir hey vera mikil og góð eftir sumarið og ásetningur hjá sauðfjárbændum er heldur  meiri. Bændur hér taka þessu þjóðfélagsástandi sem nú er með stakri ró enda ýmsu vanir í búskapnum gegnum árin. Á nýafstöðnum fundi bændasamtakanna sem haldinn var í Nýheimum kom fram að mikill nýsköpunaráhugi er hjá bændum hér í sýslunni, margir eru með skemmtilegar og áhugaverðar hugmyndir og eru miklar vonir bundnar við samvinnu við Matís með markaðssetningu á heimaunnum afurðum.</description>
Alls fuku tæp 50 kíló af keppendum
      <description>Fyrirtækjaáskorun Sporthallarinnar er nýlokið. Það voru 12 lið sem kepptu sín á milli og var mikil barátta. Alls fuku 49,9 kg. af keppendum og 335,6 cm., ekki amalegt það fyrir átveislurnar sem eru framundan. 
Þeir sem unnu til verðlauna: 
Besta mætingin: Tannlæknastofa Héðins og fast þar á eftir kom Flugstoðir og Rósaberg. 
Áskorun á milli fyrirtækja:  Lið Sævar Gylfasonar Skólalið nr II,  Bæjarskrifstofan, Rósaberg, Flugstoðir, Tannlæknastofa Héðins og Krakkakot. 
Mestu  "lúserarnir" (þeir sem misstu mest):  Sævar Gylfason léttist mest og Styrgerður Hanna missti flesta sentimetran.</description>