Áramótapistill Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra
Árið allt er markað af hruni íslenska efnahagskerfisins og í raun setja þau tíðindi sögu síðustu tuttugu ára í nýtt samhengi. Næstu ár verða þjóðinni erfiðari en flest önnur ár á lýðveldistímanum, sé horft á stöðuna út frá efnahagsmálum. Samfélagið við rætur Vatnajökuls er nokkuð vel í stakk búið til að takast á við þennan vanda. En þessi tíðindi fær fólk til að staldra við flesta þætti samfélagsins og spyrja hvort gengið hafi verið til góðs? Tíðindi síðustu mánaða hljóta að kalla á endurskoðun stjórnmála, viðskiptalífs, verkaskiptingu ríkis- og sveitarfélaga, þátttöku ríkisins í atvinnulífinu og samskipti Íslendinga við aðrar þjóðir. Þessa þætti þarf alla að skoða svo okkur fari miði áfram. Einstaklingar, fyrirtæki og opinberir aðilar verða fyrir skakkaföllum og dæmi eru um að margir hafi tapað miklum fjármunum. Staða margra er því gjörbreytt. Í október og nóvember mánuði ríkti í raun neyðarástand á Íslandi. Stjórnkerfið var meira og minna lamað, grípa þurfti til gjaldeyrishafta og leita eftir neyðarláni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Atburðarrásin var öfgafull og skellurinn svo harður að sumir gætu sagt að hrikt hafi í hornsteinum landsins. Í kjölfarið fylgdi gríðarlegt tekjufall hjá ríkinu sem leiddi til mikils halla á ríkissjóði og stórfellds niðurskurðar í ríkisfjármálum.
Efnahagslægðin birtist fyrst og fremst ennþá í sveitarfélaginu Hornafirði í þessum mikla niðurskurði og háu verðbólgu. Önnur svæði á landinu fara mun verr vegna hrunsins. Þessi inngangur ber með sér fleiri spurningar en svör. Eins og árið 2008 var markað af hruninu sjálfu er eins víst að á árinu 2009 glími menn við að svara spurningum um endurreisn Íslands og byrja að takast á um hvert skuli stefna. Næstu ár gefa okkur tækifæri til að reisa við þjóðarskútuna á nýjan leik og sníða ýmsa agnúa af.
***
Sveitarsjóður stendur vel þessi misserin eftir að síðustu ár skiluðu miklum rekstrarafgangi. Fjármunir hafa aukist frá ríkinu úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og sem betur fer auðnaðist að verja eignir og fjármuni sveitarfélagsins þegar bankarnir riðuðu til falls. Einnig hefur verið gætt aðhalds í rekstri. Þrátt fyrir lægð í efnahagslífinu verður hægt að halda áfram að reka sveitarfélagið á sömu forsendum og áður. Ekki er fyrirséð að grípa þurfi til uppsagna þó að tekjur sveitarfélagsins dragist saman og innistæður þess í bönkum duga til að halda uppi framkvæmdastigi sem kemur verktökum og iðnaðarmönnum til góða. Síðustu ár hafa líka skuldir verið borgaðar niður og þegar krónan jafnar sig og verðbólgan hjaðnar mun rekstrarumhverfi sveitarfélagsins batna á nýjan leik. Sveitarfélagið finnur í rekstri sínum fyrir sömu áhrifum efnahagskreppunnar og fjölskyldur og fyrirtæki vegna verðbólgunnar, hækkandi lána og innkaupum á vörum og þjónustu. Afgangur af rekstri sveitarsjóðs árið 2009 verður mun minni en rekstrarafgangur ársins 2008 sem er yfir 200 m.kr. Greiðsluhæfi sveitarfélagsins verður í góðu lagi og veltufé frá rekstri árið 2009 yfir 100 m.kr. Ekkert bendir því til annars en að fjárhagur sveitarfélagsins sé traustur.
Sveitarfélagið hefur tekið ákvörðun um fyrstu skref til þess að tryggja hag heimila og fyrirtækja í samfélaginu. Mannaflsfrekar framkvæmdir verða í forgangi og verður sérstök áhersla lögð á viðhald og endurbætur á húsum sveitarfélagsins. Þá er einnig verið að skoða grundvöll þess að reisa hér fjórar nýjar leiguíbúðir í tveimur parhúsum. Gert er ráð fyrir að leggja umtalsverða fjármuni í framkvæmdir á næstu tveimur árum. Verktakar og iðnaðarmenn þurfa því ekki að líða verkefnaskort. Til að koma til móts við fjölskyldur í byggðarlaginu voru tvö mikilvæg skref tekin á seinni hluta ársins. Annars vegar var ákveðið að innleiða svokallað frístundakort sem verða tekin í notkun þann 1. janúar nk. sem veita fjölskyldum 10.000 króna stuðning fyrir hvert barn í tómstunda- og íþróttastarfi. Hins vegar var ákveðið á haustdögum að lækka leikskólagjöld og gjöld fyrir lengda viðveru um 10% og auka systkinaafslátt verulega. Náið verður fylgst með útgjöldum fjölskyldna og brugðist við ef aðstæður kalla á það.
***
Unnið hefur verið að fjölmörgum málum og verkefnum á vegum sveitarfélagsins á árinu sem er að líða. Til að gefa innsýn þá verður stiklað á stóru:
- Í janúar var undirritaður samstarfssamningur sveitarfélagsins og Umf. Sindra til þriggja ára. Markmiðið er að fylgja sem best eftir mikilli uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í sveitarfélaginu. Samningurinn byggir á fyrri samningum sem þessir aðilar hafa gert sín á milli en hinn nýi leggur áherslu á að Sindri geti eflt enn frekar æskulýðsstarf á sínum vegum, þróað íþróttaviðburði, eflt jaðaríþróttir, tekið upp markvisst samstarf við önnur félög á svæðinu og að Sindri móti sér forvarna- og lýðheilsustefnu og verði leiðandi í þeim málaflokki í sveitarfélaginu.
- Í febrúar birtist úttekt á vegum tímaritsins Vísbendingar um fjármál sveitarfélaga. Í þeirri könnun skipaði Sveitarfélagið Hornafjörður fjórða sætið á eftir Garðabæ, Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ.
- Í mars barst ábending í ráðhúsið um að skoða möguleikann á að virkja sjávarorkuna og árósa. Forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands heimsótti staðinn í desember og sagði þá m.a. í ávarpi sínu að unnið sé að því á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar að skoða möguleika á að virkja sjávarföllin. Í kjölfarið var haft samband við Nýsköpunarmiðstöð og bent á áhuga Hornfirðinga að taka þátt í að þróa þessa tækni og hugvit.
- Í apríl var lokið við könnun á starfsumhverfi bæjarstarfsmanna sem síðar leiddi til endurskoðunar á starfsmannamálum.
- Í apríl kynnti Jafnréttisstofa niðurstöður rannsóknar um stöðu kynjanna hjá sveitarfélögum og þar endaði Sveitarfélagið Hornafjörður í fjórða sæti af sveitarfélögum landsins.
- Í apríl var tekin ákvörðun um breytingar á félagslífi unglinga. Eftir breytinguna heyrir forstöðumaður Þrykkjunnar undir Menningarmiðstöðina.
- Í maí var farið í ferð umhverfis landið til að kynnast hvernig önnur sveitarfélög standa að sorpflokkun, sorpeyðingu og fráveitumálum. Sú ferð var mjög gagnleg og nú er unnið að útfærslum að næsta áfanga fráveitunnar sem er grófhreinsun, hugmyndavinna er í gangi um förgun á fiskiúrgangi og samstarf hefur náðst á milli Norðlenska og sveitarfélagsins um förgun á stærsta hluta sláturúrgangs og unnið er að því að efla enn frekar sorpflokkun og að draga úr magni urðaðs sorps.
- Í júní unnu grunnskólanemar í Öræfum til verðlauna hjá Landsbyggðarvinum sem stóðu fyrir samkeppni meðal grunnskólanema víðsvegar að um landið um hvernig hægt er að efla nærsamfélagið. 8. bekkingar í Öræfum deildu efsta sætinu með grunnskólanum á Drangsnesi á Ströndum. Hugmynd Öræfinganna gengur út á að endurgera kirkjuna og bæinn í Sandfelli í upprunalegri mynd og hafa þar aðstöð til að taka á móti ferðafólki. Í verðlaun hlutu þær ferðalag til Kaupmannahafnar. Nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar unnu í haust Lego keppnina, annað árið í röð og fara sem fulltrúar Íslands á alþjóðakeppni í vor. Hróður skólans berst orðið víða og hefur Nýsköpunarmiðstöð Íslands leitað eftir samstarfi við skólann um að byggja ennfrekar upp nám á sviðið nýsköpunarfræða.
- Í júlí barst 52 m.kr. greiðsla frá ríkinu vegna reksturs HSSA en samningaviðræður hafa nú staðið yfir í nærri tvö ár um endurnýjun á samningnum.
- Í ágúst hófst undirbúningur að breytingu í skólamálum en þegar leið á árið mögnuðust þær raddir í skólasamfélaginu að skynsamlegt væri að flytja skólahald á Höfn ef það væri hægt. Eitt stærsta verkefni haustsins var að undirbúa þær breytingar. Verkefni stjórnvalda eru ekki fyrirséð og satt best að segja datt undirrituðum ekki í hug að flutningur skólahalds úr Nesjum bæri svo brátt að. Viðbrögðin við röddum skólasamfélagsins sýnir hins vegar að bæjarstjórn er tilbúinn til að hlusta og bregðast við ef því er að skipta. Sú leið sem farin var í undirbúningnum, með samráði við foreldra og starfsmenn skilaði sér í góðri vinnu og nokkuð breiðri sátt um útfærslur.
- Frá september og fram að jólum var mikill órói í íslensku þjóðlífi og íslenska stjórnkerfið hálf lamað eins og áður er getið. Rekstur erinda í stjórnarráðinu var því erfiður en hér heima fyrir var unnið að því að ljúka við gerð starfsmannastefnu, fjárhagsáætlun, viðræðum við Rolf Johansen um útflutning á vatni úr héraðinu og stofnun atvinnu - og rannsóknasjóðs. Ánægjulegt var að Þórbergssetur og Nýheimar hlutu verðlaun fyrir frumkvæðis og nýsköpunarstarf í ferðaþjónustu á haustdögum. Sveitarfélagið mun einnig eiga samstarf við aðila sem hafa áhuga á að reisa gagnaver hér í byggðarlaginu en viljayfirlýsing var undirrituð í desember. Nýverið var einnig auglýst eftir umsóknum í verkefni um smáframleiðslu á matvælum. Fjölmargir aðilar hafa sýnt því áhuga. Sveitarfélagið skoðar nú þessi dægrin hvort ekki sé ástæða til að hrinda af stað byggingu á nýjum íbúðum í parhúsum sem aukið geti fjölbreytni á leigumarkaði hér á Hornafirði en fasteignamarkaðurinn hefur verið líflegur á árinu. Atvinnurekendur á staðnum finna vel fyrir breytingu á efnahagslífi þjóðarinnar en nær allir telja þeir að fyrirtækin komist í gegnum þrengingarnar.
***
Sveitarfélagið vinnur að fjölmörgum verkefnum til að bæta hér samfélagið og styrkja stoðir þess eins og upptalningin að ofan gefur innsýn í. Á næsta ári verður sótt á enn fleiri mið ásamt því að ljúka við þau verkefni sem hafin eru. Styrkur samfélagsins byggir þó ekki eingöngu á vilja stjórnvalda á hverjum stað heldur ekki síður á atvinnulífinu og einstaklingum sem mynda samfélagið. Hið opinbera getur aldrei verið stærra en samfélagið sem það er hluti af. Hlutverk þess er að skapa aðstæður fyrir einstaklinga og atvinnulífið til að bæta afkomu sína, leiða fólk saman, stuðla að nýsköpun og efla sjálfstraust. Það er líka einn ef meginstyrkleikum þessa svæðis að framfaraandinn er ríkur hluti af menningu svæðisins og eflir mönnum bjartsýni á að gott verði að búa í samfélaginu við rætur Vatnajökuls, hér eftir sem hingað til.
Með þessum orðum óska ég íbúum öllum gleðilegs árs og þakka fyrir árið sem er að líða.
Hjalti Þór Vignisson
Bæjarstjóri á Hornafirði




Skrifa athugasemd