Góðir Hornfirðingar, jólaleikurinn 2008
Við viljum byrja á að biðjast innilegrar afsökunar á því hvað þessari fyrstu grein okkar, í Jólaleiknum 2008, hefur seinkað, en þannig er mál með vexti að við höfum, því miður, átt mjög annríkt þennan desember mánuðinn og jólin læðst óvænt aftan að okkur. En eins og Matteus sagði glöggur í 7. kafla af guðspjalli sínu: "Dæmið ekki, svo þér verðið ekki dæmdir. Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða. Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu?"
Við teljum það því vera okkar hlutverk að sjá flísarnar á húsum ykkar með tilliti til bjálka okkar. Og vitnum við í þessi orð vegna skítkasts og óorða sem við höfum fengið í fésið í gegn um tölvupóstinn okkar ( jolaleikur@hfn.is ).
En áður en við "leiðum" ykkur inn í þennan leik okkar langar okkur að segja frá vinningunum, sem eru heldur betur ekki á óæðri endanum.
Fyrsta sæti:
20.000 kr. gjafabréf til úttektar í verslunum Húsasmiðjunnar og Blómavals.
Jólageisladiskur með Villa Vill frá MARtölvunni.
Gjafabréf upp á 16? Pizzu frá Ósnum með þremur áleggstegundum að eigin
vali, franska og 2L gos.
Annað sæti:
Glæsileg gjafakarfa frá Nettó
Hársnyrtivörur frá Hárstofu Jónu og Ellýar.
Þriðja sæti:
Óvæntur glaðningur frá Blóm og Bróterí.
Gjafabréf frá Jóni Bakara að verðmæti 3000 kr.
Auk þessara vinninga höfum við ákveðið að veita verðlaun fyrir slöppustu tilraun til jólaskreytinga þetta árið, en víða um bæinn má sjá fólk sem hugsanlega er að reyna að gera eitthvað að viti, en hefur þetta ekki alveg í sér og er ekki að skila réttum árangri. Verðlaunin eiga að koma á óvart þegar þau verða veitt, en þau koma úr Akurnesi. Við viljum þó biðja fólk að taka þeim opnum örmum og taka þetta ekki inn á sig, því allt er þetta til gamans gert.
Á ferðum okkar um bæinn hefur hópur húsa gripið athygli okkar, og mörg hver lofað ákaflega góðu. Okkur þótti það mjög áberandi, en þannig var það nú líka í fyrra, hvað mörg hús hér í bæ lofuðu góðu, en reyndust þó vera ókláruð skreytingalega séð. Oftar en ekki mátti sjá mikilvæg atriði eins og limgerði, girðingar, bílskúra, þakskegg, þakstrengi og síðast en ekki síst trén óskreytt, sem gerði það að verkum að skreytingin var ófullkomnuð að okkar mati og gerði húsið napurt og einmannalegt. Það er því þetta, gott fólk, sem þið megið hafa hvað mest í huga við skreytingar ef þið viljið skora stig hjá okkur. Haldið stílnum eins og hreinum og einföldum og mögulegt er ? en verið óhrædd við að taka frumkvæði og láta vaða í eitthvað sem þið hafið ekki séð áður. Svo við vitnum aftur í Biblíuna góðu, þá segir í sögulegum köflum Jeremía:
"Reis þér vörður! Reis þér vegamerki! Haf athygli á brautinni, veginum, sem þú fórst!"
Okkar langar að nefna nokkur hús sem okkur þótti skora hátt hjá okkur, og langar aðeins að krítisera.
Hér má lesa smávægilegar lýsingar á þeim sem okkur þótti mest áberandi.
Verðlaunahafar síðasta árs koma mjög sterkir inn þetta árið, en þar ber helst að nefna Hólabraut 18 og Silfurbraut 31. Hólabrautin hefur aldrei verið sterkari að okkar mati. Hann viðheldur öllum flottu "fítusunum" og er kominn með mun hreinni stíl en áður. Silfurbrautin heldur einnig sínum klassíska piparkökuhúsa þema sem er mjög flottur. Marglituðu perurnar hjá þeim eru að virka mjög vel. Svo virðist sem margir hafi reynt að taka sér stíl Silfurbrautar 31 til fyrirmyndar, en við erum þó á þeirri skoðun að þessi þemi henti ekki hverjum sem er, en það eru fá hús með svipuðum þema sem fá hárin til að rísa af hrifningu.
Austurbraut 4 er þó ekki að koma eins sterk inn og hún gerði í fyrra. Við hefðum viljað sjá meiri skreytingar í trjám og hefðum viljað sjá skreytingu á palli. Einnig tókum við eftir flottum skjólveggjum í blómabeði hússins sem bjóða upp á stórkostlega baklýsingu. Við viljum sjá meira Jón!
Þegar við skoðuðum Hólabrautina urðum við varir við hús í grennd við höfðingjann sjálfan, en um er að ræða mjög stílhreint og vel skreytt hús að Hólabraut 13. Okkur fannst þó vanta ljós á alla girðingastaura og skreytingar á pall. Með slíkum skreytingum teljum við að húsið gæti orðið stílhreinasta hús bæjarins!
Smárabrautarbandalagið kemur sterkt inn í ár, en þó viljum við benda þeim á samræmi í stíl mætti vera meira. Trén í forgörðum eru óskreytt, og eru tré lengra inn í görðum úr stíl. Það er mjög flott og skemmtilegt að nágrannarnir vinni þetta saman - en getur þó einnig verið þeirra helsti galli þar sem þeir draga hvorn annan niður hvað varðar stíl. Bæði hús mjög flott skreytt - en fannst ósamræmi í pöllum ósmekklegt. Pallurinn að Smárabraut 18 má taka til fyrirmyndar, en okkur þykir hann MJÖG vel skreyttur og hentar 100% við stíl hússins.
Það er alltaf gaman að bæta við nýjum sigurstranglegum keppendum, en við teljum að Smárabraut 13 sé að koma feiknar sterkt inn að þessu sinni. Stíllinn þeirra er mjög einfaldur og hreinn og er eitt af fáum húsum í bænum sem tekst að "púlla" rauðann þema! Viljum við hrósa þeim mjög fyrir það og einnig fyrir smekklega uppröðun á fígúrum og þesskonar skrauti. Það eina sem þau mættu skoða væri kannski að endurnýja perur sem misst hafa lit sinn.
Fákaleira 6b kemur einnig ákaflega sterkt inn, en þau eru þá kannski þekktust fyrir sína magnþrungnu og fallegu stjörnu, en okkur þykir hún virkilega töff. Ef allir gluggar yrðu skreyttir á sama hátt og stóri stofuglugginn væri fátt sem myndi ná að standa í vegi fyrir því að þau kæmust á pall. Annars má benda þeim á að limgerðið er óskreytt og þak heldur tómlegt, en okkur þykir það mikill mínus.
Við vonum það innilega að fólk styðjist við þessar "krítiseringar" við skreytingu húsa sinna, og biðjumst enn og aftur velvirðingar á seinkun þessarar greinar.
Minnum einnig á netfangið okkar: jolaleikur@hfn.is
Úrslit verða birt með seinni grein okkar.
Gleðileg jól,
Hörður og Ottó Marwin. *<|:-)=





Skrifa athugasemd