Desember
Hornafjardarmanni_121_2007
Hornafjardarmanni_121_2007
Til úrslita kepptu Haraldur Jónsson, Snorri Jónsson og Gísli Gunnarsson á Hornafjarðarmeistaramóti 2007.

27.12.2008 Desember

Hornafjarðarmeistaramótið í HornafjarðarMANNA

Hornafjarðarmeistaramótið verður að venju milli hátíða. Á síðasta móti voru tæplega hundrað keppendur og var keppnin sérstaklega spennandi, bæði þurfti bráðabana í úrsláttakeppninni og úrslitaspilinu.
Þetta er tólfta árið sem mótið er haldið og sigurvegarar hafa orðið þessir:

2007 Snorri Jónsson
2006 Hans Christensen
2005 Sverrir Guðmundsson
2004 Rannveig Sverrisdóttir
2003 Steinunn Óladóttir
2002 Björn Ólafsson
2001 Signý Ingvadóttir
2000 Þorgerður Sigurðardóttir
1999 Rannveig Sigurðardóttir
1998 Elvar Unnsteinsson
1997 Sigurjón Steindórsson

Mótið verður í Nýheimum mánudaginn 29. desember og hefst kl. 20:00. Þátttökugjald er það sama og fyrir tólf árum eða 500- kr. og frítt fyrir grunnskólanemendur.

Albert Eymundsson útbreiðslustjóri
sími 861 7802 - albert@fssf.is - hornafjordur.is/manni

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica