Skötuveisla í Holti á Mýrum
Mýramenn tóku sér stutt frí frá jólaundirbúningi og bústörfum til að halda sameiginlega skötuveislu í félagsheimili sínu. Ungir sem aldnir gæddu sér á dýrindis skötu en þeir sem ekki treystu sér í skötuna kýldu vömbina með saltfisk og þjóðlegu meðlæti. Boðið var uppá ís í eftirrétt, hellt var upp á kaffi og málin skeggrædd á meðan börnin hlupu úr sér mesta jólaspenninginn. Þetta er í fyrsta skipti sem sameiginleg skötuveisla er haldin í Holti og var mæting með besta móti. Eflaust eru margir ánægðir að losna við skötuilm af heimilum sínum svona beint ofan í Ajax ilminn.
Veislan heppnaðist vel og hver veit nema að þetta verði að árlegum viðburði hjá Mýramönnum.




Skrifa athugasemd